Sport

Skráir nýjan kafla í skíðasögu Ís­lendinga

Sindri Sverrisson skrifar
Jónar Sebastían Giljan Grímssson skrifar nýjan kafla í skíðaíþróttasögu Íslands í dag.
Jónar Sebastían Giljan Grímssson skrifar nýjan kafla í skíðaíþróttasögu Íslands í dag. SKÍ

Jónar Sebastían Giljan Grímssson gerist þessa dagana fyrstur Íslendinga til þess að keppa í skíðafimi á heimsmeistaramóti, á HM unglinga í skíðafimi og snjóbrettum í Kanada.

Jónar og Jökull Bergmann taka þátt í mótinu sem hófst í Calgary 24. febrúar og stendur yfir til 7. mars. Jökull keppir á snjóbretti en báðir taka þeir þátt í þremur greium.

Jónar keppir í dag í big air, eða skíðaloftfimi. Í riðli hans eru 23 keppendur og fær hver þeirra tvær tilraunir þar sem betra stökkið gildir. Keppt er í þremur riðlum og komast sjö áfram úr hverjum riðli – alls 21 keppandi í úrslit. Hægt er að fylgjast með framgöngu hans á vef FIS eða í beinni útsendingu klukkan 20:45.

Fyrr á mótinu tók Jónar þátt í undankeppni í brekkufimi (e. slopestyle) 26. febrúar. Smávægileg mistök í lendingu í fyrri ferðinni reyndust dýrkeypt og í seinni ferðinni setti vindur strik í reikninginn. Hann náði því ekki að komast í úrslit að þessu sinni.

Jökull missti einnig af úrslitum í „slopestyle“ á bretti á laugardaginn en hafnaði þar í  56. sæti. Hann keppir í „big air“ á morgun.

Þann 6. mars keppa þeir Jökull og Jónar svo í hindranakeppni (e. rail), þar sem keppt er eingöngu á járnum og hindrunum.

Jónar keppir fyrir Skíðafélag Akureyrar (SKA) en stundar nám við skíðamenntaskólann NTG í Lillehammer í Noregi, þar sem hann sameinar nám og skíðaþjálfun.

Jökull keppir einnig fyrir SKA en stundar nám og æfingar við snjóbrettaskóla í Svíþjóð og hefur á tímabilinu æft mikið undir leiðsögn Justin De Graaf, þjálfara Önnu Kamillu, landsliðskonu Íslands í snjóbrettum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×