Stálu krullusteinum á Ólympíumóti fatlaðra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. mars 2026 09:32 Krullusteinarnir eru sérstakir steinar sem koma allir frá einni eyju við Skotland. Getty/Mattia Ozbot Tveimur steinum sem áttu að vera notaðir í hjólastólakrulluna á Ólympíumóti fatlaðra hefur verið stolið.
Atvikið átti sér stað nokkrum vikum eftir að krulla komst í fréttirnar á Ólympíuleikunum þegar karlalið Kanada var sakað um svindl á leið sinni að Ólympíugullinu. Hjólastólakrulla á Ólympíumóti fatlaðra hófst á miðvikudagskvöld og segja mótshaldarar að þeir séu að rannsaka hvert granítsteinarnir hafi farið. Winter Paralympics scandal erupts as curling stones are stolen just hours before start of competitionhttps://t.co/B6cYEsP4v5— The Independent (@Independent) March 4, 2026 „Við höfum tekið í notkun varasteinana og þeir eru hluti af upprunalega settinu. Þetta mun ekki hafa nein áhrif á keppnina,“ segir í yfirlýsingu frá Alþjóðakrullusambandinu. Steinarnir eru taldir vera um 750 punda virði hver og einn eða um 125 þúsund íslenskar krónur. Krulla á það til að fara undir radarinn hjá stóru fjölmiðlunum bæði á Ólympíuleikunum og Ólympíumóti fatlaðra, en þjófnaðurinn á steinunum hefur haft öfug áhrif, líkt og þegar Kanada var sakað um svindl. Deilur brutust út eftir að karlalandslið Svía sakaði kanadíska krulluspilara um að snerta steinana tvisvar í leik liðanna. Til að bregðast við þessu tilkynnti Alþjóðakrullusambandið upphaflega að tveir dómarar myndu fylgjast með línunni, þeim stað þar sem krulluspilarar verða að sleppa steininum, það sem eftir væri af keppninni. Ástandið magnaðist hins vegar fyrir kvennalandslið Kanada þegar einn af steinum þeirra var tekinn úr leik fyrir tvísnertingu í tapi gegn Sviss. Í samtali við fjölmiðla hafnaði kanadíski krulluspilarinn Rachel Homan ásökununum alfarið. „Mér finnst orðið svindl koma upp úr þurru. Þetta hefur ekkert með svindl að gera. Það er enginn möguleiki á að Kanadamenn myndu nokkurn tíma svindla af ásettu ráði,“ sagði hún. „Við gerum það ekki. Við erum að keppa þarna úti. Við erum harðar af okkur. Þú veist, hlutir gerast. Fólk brennir steina. Fólk fer yfir línuna, það er bara hluti af íþróttinni.“ Karlalandslið Kanada vann svo gull á leikunum eftir sigur á liði Bretlands í úrslitaleiknum. Setningarhátíð Ólympíumóts fatlaðra í ár verður í Veróna á föstudagskvöld.
Krulla Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Mest lesið Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Sport Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur Enski boltinn United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn DocZone snýr aftur Enski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Messi sektaður fyrir að slá andstæðing „Auðvitað var auka hjartsláttur“ ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Bein útsending frá Reykjavíkurmaraþoninu Gascoigne segist ekki hafa sofið í sex vikur DocZone snýr aftur Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Sjá meira