Innherji

Nefndin „föst í eitruðum kok­teil“ og þarf að láta glitta í mögu­lega vaxta­hækkun

Hörður Ægisson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu. Næsta vaxtaákvörðun verður tilkynnt miðvikudaginn 18. mars en flest hefur þróast til mun verri vegar frá því að nefndin kom síðast saman í byrjun febrúar. 
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu. Næsta vaxtaákvörðun verður tilkynnt miðvikudaginn 18. mars en flest hefur þróast til mun verri vegar frá því að nefndin kom síðast saman í byrjun febrúar.  Vísir/Vilhelm

Þróunin frá síðustu vaxtaákvörðun hefur verið einstaklega óhagstæð en peningastefnunefnd er núna „föst í eitruðum kokteil“ þar sem fer saman hækkandi verðbólga, aukið atvinnuleysi, kólnandi hagkerfi og verðbólguvæntingar rokið upp. Ef ekki á illa að fara, að mati greinenda Acro verðbréfa, þá þarf nefndin núna að „standa í lappirnar“ með mun hvassari tóni í yfirlýsingu sinni en áður og gefa út skýr skilaboð um að hún sé reiðubúin að hækka vexti.


Tengdar fréttir

Því lengur sem verðbólgan er yfir mark­miði því meira rýrnar trúverðug­leikinn

Með hliðsjón af verðbólguskoti síðustu mánaða og væntingum um betri hagvaxtarhorfur í ár þá kom mjúkur tónn í yfirlýsingu peningastefnunefndar á óvart, að sögn efnahagsráðgjafa IFS. Miðað við verri verðbólguhorfur til skamms tíma telja sumir hagfræðingar sennilegt að bíða þurfi fram í ágúst eftir næstu vaxtalækkun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×