Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Árni Sæberg skrifar 5. mars 2026 13:54 Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason er forstjóri Skeljar fjárfestingafélags. Skel fjárfestingafélag Fordæmalaus húsleit ESA hjá Toska ehf., fyrrverandi eiganda Lyfja og heilsu, Lyfjum og heilsu og Skel fjárfestingafélags árið 2024 var lögleg.
Þetta var niðurstaða EFTA-dómstólsins, sem kvað upp dóm í sameinuðum málum Toska, Lyfja og heilsu og Skel, í dag. Í fréttatilkynningu um dóminn segir að félögin þrjú hafi farið fram á ógildingu á ákvörðunum Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, um framkvæmd húsleitar hjá félögunum. Greint var frá húsleit hjá Skel þann 14. október árið 2024. Í tilkynningu segir að húsleitin hafi farið fram í tengslum við rannsókn ESA á meintum samkeppnisbrotum Toska og Skeljar á smásölumarkaði lyfja á Íslandi. Toska og Skel hafi haldið því fram að ákvarðanirnar væru ekki nægilega rökstuddar; ekki væru fyrir hendi nægilegar vísbendingar um brot gegn 53. gr. EES-samningsins til að réttlæta rannsóknina; það væru engin áhrif á viðskipti milli EES-ríkja; og ESA hefði ekki haft lögsögu til að rannsaka hin meintu brot, þar sem háttsemin hefði þegar verið heimiluð samkvæmt íslenskum lögum í kjölfar samrunarannsóknar Samkeppniseftirlitsins. Toska hafi einnig haldið því fram að rannsóknin bryti gegn réttaröryggi sínu og banni við endurtekinni málsmeðferð. Rökstuddur grunur EFTA-dómstóllinn hafi sýknað ESA af öllum kröfum Tosku og Skelja. Dómstóllinn hafi talið að ákvarðanirnar væru nægilega vel rökstuddar, þar sem í ákvörðununum kæmu fram meginþættir hinna meintu samkeppnisbrota, það er markaðurinn sem málið varðaði, eðli hinna meintu brota og meint þátttaka fyrirtækjanna í þeim. Þá hafi EFTA-dómstóllinn talið að ESA hefði haft nægilegar vísbendingar til grundvallar húsleitinni. Að þessu leyti hafi EFTA-dómstóllinn lagt áherslu á að það væri tilgangur húsleitar að afla sönnunargagna sem gætu staðfest eða hnekkt slíkum vísbendingum ESA. Aðrar skýringar á háttsemi félaganna og aðrar upplýsingar kæmu til skoðunar á síðari stigum rannsóknarinnar. Innan lögsögu ESA Þá hafi EFTA-dómstóllinn talið að ESA hefði, á þessu stigi málsins, haft haldbærar ástæður fyrir því að telja að hin meintu samkeppnisbrot gætu haft áhrif á viðskipti á milli EES-ríkja. Að því er varðaði lögsögu ESA, hafi EFTA-dómstóllinn lagt áherslu á að það leiddi af ákvörðunum ESA að háttsemin sem rannsóknin lyti að væri annars eðlis og víðtækari að umfangi – bæði í tíma og rúmi – en samrunamál samkeppniseftirlitsins. „Niðurstaðan var því sú, að ESA hefði haft lögsögu til að rannsaka hin meintu samkeppnisbrot og að sú rannsókn hefði hvorki brotið gegn réttaröryggi né ne bis in idem.“
Samkeppnismál EFTA Lyf Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Sjá meira