Hreðjatak á Nýjum Landspítala, framkvæmdastjórinn viðurkennir kerfisgallann og enginn stöðvar Sigurður Sigurðsson skrifar 5. mars 2026 14:31 Einhvern daginn, kannski eftir tuttugu ár, munu menn líta til baka á byggingu þjóðarsjúkrahússins og spyrja einfaldra spurninga: 1) Hvernig var þetta skipulagt? 2) Hver bar ábyrgð? 3) Og af hverju var ekki gripið inn í þegar viðvörunarljósin kviknuðu? Við erum að tala um stærstu opinberu framkvæmd Íslandssögunnar – framkvæmd á vegum Nýr Landspítali ohf., (NLSH ohf) -félags í eigu ríkisins sem sér um uppbyggingu nýs þjóðarsjúkrahúss. Þetta er ekki smáverkefni. Þetta er framkvæmd sem getur numið hundruðum milljarða króna og haft alvarleg áhrif á ríkisfjármál næstu áratugi. Viðurkenningin sem breytir öllu Í útvarpsviðtali á Bylgjunni 4. mars 2026 viðurkenndi framkvæmdastjóri Nýja Landspítalans ohf. að engir bindandi samningar væru til um endanleg verklok og að ný fimm ára seinkun væri núna raunhæf sviðsmynd. Þetta eru stór orð. Þegar æðsti stjórnandi verkefnis af þessari stærðargráðu staðfestir opinberlega að enginn samningsbundinn lokadagur sé tryggður á ríkisverkefni sem veltir hundruðum milljarða, þá er það ekki bara frétt Það er staðfesting á mjög alvarlegum kerfisgalla. Í venjulegu byggingaverkefni eru tímamörk, ábyrgð, tryggingar og viðurlög við samningsbrotum mjög skýrt skilgreind. Enginn verkkaupi greiðir verktaka fyrir verk nema tryggt sé að hann skili umsömdu verki á umsömdum tíma í þeim gæðum sem um var samið. Oftast framkvæmir verktaki verkið á sinn kostnað samkvæmt teikningum og verklýsingum og verkkaupi skoðar verkið og metur hvort gæðin séu í lagi og hvort umsamin tímamörk hafi verið virt - og hvort önnur samningsákvæði hafa verið uppfyllt - þá fyrst greiðir verkkaupinn. Ef verki seinkar ber einhver ábyrgð. Ef kostnaður fer fram úr samþykktri kostnaðaráætlun eru til samningsbundin úrræði sem eru skaðabætur til verkkaupa og dagsektum er beitt ef verki seinkar. Nú liggur fyrir að slíkur bindandi endapunktur og löglegur verksamningur er ekki tryggður með samningum í Nýja Landspítalanum þar sem afhendingu verksins hefur seinkað aftur og aftur án afleiðinga fyrir verktakann. Allur skaðinn og himinhár viðbótarkostnaður er greiddur orðalaust af ríkinu. Að þetta skaðlega ástand liggi nú fyrir ætti að duga til að kalla strax á tafarlausa endurskoðun á verkumsjónarferlinu. Sami aðili stýrir og metur Í hefðbundinni verkstjórn byggingaframkvæmda eru hlutverkin greinilega aðskilin í samræmi við verksamninga og samningsgögn: 1) Verkkaupi borgar og setur kröfur. 2) Framkvæmdaraðili framkvæmir verkið samkvæmt samningi. 3) Óháð eftirlit tryggir að samningar séu virtir og að unnið verk sé löglegt, unnið samkvæmt samningi á umsömdum tíma. Ef allt er í lagi - þá fyrst er greitt. Í þessu verkefni NLSH ohf renna öll þessi hefðbundnu hlutverk i stjórnun byggingaframkvæmda saman þar sem sami aðilinn sér um alla þættina. Nýi Landspítali ohf. starfar því bæði sem framkvæmdaraðili og sem trúnaðarmaður verkkaupa – sem er Alþingi fyrir hönd ríkisins. Sami aðili, framkvæmir, skipuleggur verkið, stýrir því og upplýsir eigandann um hvernig gengur. Það er ekki heilbrigt fyrirkomulag í framkvæmd þar sem frávik í byggingarkostnaði verkkaupa getur munað hundruðum milljarða. Hver ákveður umframkostnað greiddan úr ríkissjóði uppá hundruð milljarða? Er það Alþingi eða NLSH ohf. Í einkageira byggingaframkvæmda væri þetta einfaldlega ekki samþykkt. Engum mundi detta í hug að taka svona áhættu - hvorki verkkaupum né verktökum. En í ríkisframkvæmd - sem er nánast rekin með hliðstæðu sniði eins og í kommúnista - eða einræðisríkjum - þar sem verktakinn og verkkaupinn eru sami aðilinn með engan verksamning og engar verkáætlanir - og ríkisfjárhirslan sendir peninga blindandi inn í verkefnið þar sem enginn ber ábyrgð - því ríkið á allt hvort sem er - þá eru þetta afleiðingarnar. Engin tímamörk hvenær spítalaframkvæmdinni lýkur og enginn veit hvað þetta gæti komið til með að kosta - eins og gerist í einræðisríkjum. Enda er þar öllum sama - ríkið á allt hvort sem er. Setjum stærðina í samhengi Heildarskuldir ríkissjóðs nema núna yfir tvöþúsund milljörðum króna. Ef bygging og fjármagnskostnaður þjóðarsjúkrahússins fara í 500 milljarða – sem er raunhæf sviðsmynd miðað við nýjar tafir núna vegna galla á verkstjórn og tilheyrandi vaxtakostnaði – þá erum við að tala um verulegan hluta af skuldastöðu ríkisins. Ætli NSLH ohf stjórni því? Ef reksturinn safnar síðan upp frekari skuldbindingum yfir næstu tvo áratugi gæti heildaráhættan af nýju þjóðarsjúkrahúsi nálgast 900 til 1.000 milljarða. Þetta er samt bara ein framkvæmd í landi með um 380 þúsund íbúa. Við 6% vexti þýðir 500 milljarða skuldbinding um 30 milljarða í árlega vaxtabyrði. Tvöföld upphæð þýðir um 60 milljarða á ári. Það eru fjármunir sem annars gætu farið í menntun, samgöngur, almannatryggingar eða skuldaniðurgreiðslu - jafnvel í að verðtryggja laun elli- og örorkulífeyrisþega. Þetta er stefnumótandi ákvörðun um fjárhagslegt framtíðarsvigrúm ríkisins. I dag virðast þessar ákvarðanir mögulega teknar að hluta til í gámi á Landspítalalóðinni. Þetta er ekki andstaða við spítala Enginn efast um að Ísland þurfi öflugt þjóðarsjúkrahús. Spurningin er ekki hvort við eigum að byggja. Spurningin er hvort við eigum að byggja með ábyrgð. Gagnrýni á verkumsjónarferlið er ekki árás á heilbrigðiskerfið. Hún er krafa um að stærsta byggingaframkvæmd landsins sé rekin með skýru aðhaldi, gagnsæi og ábyrgðarkeðju. Þegar bindandi lokasamning vantar og sami aðili situr beggja megin borðsins, þá er það ekki smávægilegur skipulagsgalli. Það er svakaleg stjórnarfarsleg áhætta fyrir ríkið. Skilaboð til Alþingis Alþingi er verkkaupinn. Það er ekki nóg að fá kynningar og stöðuskýrslur. Þegar framkvæmdastjóri NLSH ohf sjálfur viðurkennir í viðtali við útvapsfjölmiðil að enginn samningsbundinn lokadagur sé tryggður og að ný veruleg ca 5ára seinkun sé núna líkleg, þá er það augnablik sem kallar á stórkostleg viðbrögð Alþingis. Það þarf að gera allsherjar uppskurð á allri umsjón með framkvæmdum Nýja Landspítalans: -Aðgreina þarf skýrt hlutverk milli verkkaupa og framkvæmdaraðila. – Gera bindandi verksamning með tíma- og kostnaðarmörkum með raunverulegri ábyrgð og ábyrgðartryggingu um að verkinu ljúki á umsömdum tíma, í umsömdum gæðum fyrir umsamið verð. – Fá óháða heildarúttekt á öllu verkinu núna svo sem kostnaði og áhættu þannig að unnt se að ganga til samninga við ábyrgan verktaka til að ljúka verkinu. – Birta þjóðinni heildarskuldbindingar – ekki aðeins byggingarkostnað heldur fjármagns- og rekstraráhættu ásamt öllum samningum og öðrum lykil upplýsingum. Það er ekki veikleikamerki að laga kerfi. Það er styrkur. Sögulegi dómurinn Eftir tuttugu ár mun þjóðarsjúkrahúsið vonandi standa sem tákn um öflugt heilbrigðiskerfi. En sagan mun ekki aðeins meta bygginguna. Hún mun meta stjórnsýsluna, hvort við brugðumst við þegar viðurkenningin lá fyrir. Hvort við leiðréttum verkumsjónarferli sem var augljóslega rangt gagnvart þjóðinni. Eða hvort við létum stærstu framkvæmd Íslandssögunnar halda áfram á hálfgerðri sjálfstýringu með fyrirsjáanlegri nýrri viðbótarskuld ríkisins ca kr 1000 milljarða? Framtíðin mun spyrja einfaldlega: Þegar framkvæmdastjórinn staðfesti að enginn bindandi endapunktur væri tryggður – af hverju breyttuð þið ekki ferlinu? Það er enn tími til að tryggja að svarið verði okkar kynslóð í hag og tíminn til að bregðast við er núna. Höfundur er byggingaverkfræðingur og áhugamaður um bætt samfélag Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Mest lesið Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kæru landar - Af hverju eigum við að segja JÁ í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Forgangsröðun fjár úti í skurði Diljá Matthíasardóttir skrifar Skoðun Staða Grindavíkur Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Raunhæf leið til að bæta heilbrigðiseftirlit Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Fyrstu fasteignakaup sjaldan verið aðgengilegri Víðir Arnar Kristjánsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustan 2026: Vöxturinn er ekki lengur sjálfgefinn Herborg Svana Hjelm skrifar Skoðun Hvar liggja mörkin? Dagmar Valsdóttir skrifar Skoðun Hversu mikið af varnarefnum er í matnum þínum? Anna Lind Fells skrifar Skoðun Tveir öfgamenn ganga inn á bar... Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Hildarleikur Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar Skoðun Börn send fram og til baka Lúðvík Júlíusson skrifar Skoðun Flugfélög og styrkur stéttarfélaga, traust og tryggð Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Þekking sem mótar land, byggð og samfélag Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Hvað gerist þegar barn hættir að treysta fullorðnum? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Til hvers var barist og hver situr að aflanum? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver er munurinn á Þorgerði Katrínu og Donald Trump? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Tala og tala en gera ekki neitt Tómas Þór Þórðarson skrifar Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Barnamenning mótar raddir framtíðar Logi Már Einarsson skrifar Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar Skoðun Þegar hegðun er ákall en enginn hlustar Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Alþingi í samstarfi við pólitísk félagasamtök? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Að langa en geta ekki Birna Heiðarsdóttir skrifar Skoðun Misskilningur um samræmingu heilbrigðiseftirlits Pétur Halldórsson skrifar Skoðun Opinn tékki með fullveldið að veði Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun
Skoðun Frístundastarf skiptir máli - líka á sumrin ! Steinn Jóhannsson,Soffía Pálsdóttir ,Jakob Frímann Þorsteinsson skrifar
Skoðun Framkvæmdastjórar SA styðja hækkun kostnaðar við opinbert eftirlit Hörður Þorsteinsson skrifar
Skoðun „Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason skrifar
Skoðun Traust verður verðmætasta auðlind fyrirtækja á tímum gervigreindar Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson skrifar
Skoðun Samfélagið á innsoginu: Við bíðum bara eftir næsta morði á borð við Menningarnótt Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Gjaldmiðlamálið: íslenski smábáturinn eða stóra skipið sem þolir ólgusjó? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
„Þegar þekking skapar ábyrgð. Hvað myndi Mannréttindadómstóll Evrópu segja um Seyðisfjörð?“ Lárus Bjarnason Skoðun
Leiðrétting á loftslagsumræðu á Alþingi: Ísland er ekki fyrirmynd og ESB er ekki vandamálið Eyþór Eðvarðsson Skoðun