Var með krabbamein á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. mars 2026 12:31 Janne Andersson hélt áfram að þjálfa sænska landsliðið þrátt fyrir veikindin og stýrði því í fimm ár til viðbótar. Getty/Michael Campanella Fyrrverandi landsliðsþjálfari Svía hefur sagt frá því að hann glímdi við erfið veikindi á sama tíma og hann stýrði liðinu á heimsmeistaramótinu í fótbolta.
Hinn 63 ára gamli Janne Andersson segir að hann hafi verið með krabbamein þegar hann stýrði Svíþjóð á heimsmeistaramótinu í fótbolta fyrir átta árum. Hann fékk fréttirnar um veikindin rétt fyrir mótið. Það er í viðtali við þáttinn „Carina Bergfeldt“ á sænska ríkisútvarpinu þar sem Andersson opnaði sig um blöðruhálskirtilskrabbameinið sem hann greindist með en Expressen segir frá. Andersson tók eftir því að eitthvað var að í janúar 2018 þegar hann og landsliðslæknirinn Anders Wallentin voru í göngutúr. Andersson þurfti að stoppa nokkrum sinnum á leiðinni til að pissa og læknirinn Wallentin ráðlagði honum að láta athuga sig. Rannsóknir leiddu í ljós krabbamein í blöðruhálskirtli. „Ég fékk niðurstöðurnar úr ómskoðuninni sama dag og við söfnuðum leikmönnunum saman. Það var frekar erfitt, má segja,“ sagði Andersson. Andersson náði sér af veikindunum og er í dag alveg einkennalaus. „Það eru margir sem lenda í miklu verri hlutum en ég hef gengið í gegnum en það er ljóst að þegar manni er rúllað þarna inn með fullt af ljósum og tækjum þá er maður ekki hrokafullur,“ sagði greinilega snortinn Andersson. Eftir að hafa fengið krabbameinsgreininguna stýrði hann Svíþjóð í átta liða úrslit á HM í Rússlandi. View this post on Instagram A post shared by Sportbladet (@sportbladet)
Sænski boltinn HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira