Dreymdi aftur og aftur að hann hefði unnið gullið sem hann klúðraði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. mars 2026 09:02 Norski skíðamaðurinn Atle Lie McGrath bauð upp á ótrúlega uppákomu í síðustu ferðinni í svigkeppni Vetrarólympíuleikanna. Getty/Sean M. Haffey Norski skíðamaðurinn Atle Lie McGrath upplifði mjög erfiða stund fyrir framan allan heiminn á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Nú hefur hann rætt það sem við tók eftir klúðrið og furðulegu viðbrögðin í framhaldinu.
McGrath var á öruggri leið með að vinna Ólympíugull í svigi karla, hafði trausta forystu eftir fyrri ferðina og mikið þurfti að fara úrskeiðis ef hann ætti að missa af gullverðlaununum. Flúði út í skóg En mikið fór úrskeiðis. McGrath festist í hliði, missti stjórn á sér og rann út úr brautinni. Norska stjarnan gafst upp á að ljúka ferðinni og henti frá sér stöfunum sínum og öllu lauslegu í bræðikasti. Eftir það yfirgaf hann brekkuna og „flúði“ eins langt í burtu og mögulegt var. Hann stoppaði ekki fyrr en hann var einangraður úti í horni í skógi. Þar lagðist hann niður og starði tómum augum upp í loftið. Absolute heartbreak for Atle Lie McGrath 💔He throws his skis in the air, storms off and has a lie down in the snow to process the mistake that lost his shot at Olympic gold 😲💥 pic.twitter.com/D7pu9c4TFc— TNT Sports (@tntsports) February 16, 2026 Tuttugu dögum síðar tjáir Norðmaðurinn sig nú um atvikið sem hefur haft mikil áhrif á hann síðan og kom honum líka í heimsfréttirnar fyrir allt annað en hann óskaði. Dreymt ótrúlega mikið „Ég hef glímt við það að mig hefur dreymt ótrúlega mikið fyrstu tíu dagana,“ sagði Atle Lie McGrath við Verdens Gang. „Ég endurlifði atvikið þar sem ég kræktist í hliðið. Það hefur brennt sig fast í heilann á mér. Það var nákvæmlega það sem ég hugsaði á þessum tíu til fimmtán sekúndum þarna,“ sagði McGrath. „Og svo fór mig að dreyma að ég hefði klárað ferðina, að ég væri með gullverðlaunin um hálsinn og ég fann líkamlega fyrir þeim hangandi þar. En svo vaknaði ég og áttaði mig á því að þar var ekkert,“ sagði McGrath. Missti afa sinn nokkrum dögum fyrir keppni Það fylgir sögunni að Atle Lie McGrath hafði engan veginn fengið besta undirbúninginn fyrir svigkeppnina. Nokkrum dögum áður hafði hann misst afa sinn, sem þýddi mikið fyrir hann. Sorgin helltist yfir hann og það varð bara enn verra þegar Ólympíudraumurinn brast. 🫨 Le crashout est totalement validé. Elle fait de la peine cette détresse d'Atle Lie McGrath, après la 2e manche du slalom où il est parti à la faute.Suivez les Jeux Olympiques de #MilanoCortina2026 en intégralité sur Eurosport et HBO Max pic.twitter.com/YL5RVcujFm— Eurosport France (@Eurosport_FR) February 16, 2026 Í fyrstu vissi hann ekki hvað honum ætti að finnast um að sjónvarpsmyndirnar af honum, þar sem hann stefndi í bræði og gremju beint í átt að skóginum, fóru á flug og var deilt víða. En í kjölfarið hefur hann fengið mörg stuðningsskilaboð þar sem fólk skrifar að það geti vel sett sig í hans spor og að það langi oft sjálft til að gera það sama. Við erum ekki ofurhetjur „Þetta allt sýndi kannski að það er eitthvað mannlegt við íþróttir. Við erum jú bara mannleg. Við erum ekki ofurhetjur. Ég er tilfinninganæmur náungi. Ég fel ekki hvað mér finnst, hvort sem það er gott eða slæmt,“ sagði McGrath. Hann var viðstaddur jarðarför afa síns eftir Ólympíuleikana og eftir að hafa eytt tíma með fjölskyldu sinni var hann tilbúinn að ræða atvikið og hefja aftur keppni.
Vetrarólympíuleikar 2026 í Mílanó og Cortina Skíðaíþróttir Mest lesið United nær samkomulagi við Brighton um Baleba Enski boltinn Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Íslenski boltinn „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ Íslenski boltinn „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Íslenski boltinn Sinner missir af Opna bandaríska Sport Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Íslenski boltinn Glódís skoraði í stórsigri Bayern Fótbolti Curtis Jones farinn til Inter Enski boltinn Fleiri fréttir Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Sjá meira