Vaxandi ótti við langvarandi átök Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 9. mars 2026 19:23 Sprengjur féllu á olíubirgðarstöð í Tehran höfuðborg Írans í gær. AP Vaxandi ótti við langvarandi átök í Mið-Austurlöndum er meginástæða þess að heimsmarkaðsverð á olíu hefur rokið upp. Verðið á olíutunnunni hækkaði um tuttugu prósent á einum degi og segir hagfræðingur skell eins og þennan hafa sérlega mikil áhrif á litla þjóð.
Sjö af stærstu og áhrifamestu iðnríkjum heims, G7-ríkin svonefndu, boðuðu til neyðarfundar í dag vegna hækkandi olíuverðs. Verð á hráolíu fór yfir hundrað dollara á tunnu við opnun markaða í morgun. Verðið hefur ekki verið hærra í fjögur ár eða frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Þá féllu einnig hlutabréf á mörkuðum. Tíu dagar eru síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar gerðu árásir á Íran og fer óttinn við að átökin verði langvarandi vaxandi. Íranar hafa tilkynnt að Mojtaba Khamenei taki við sem æðstiklerkur í Íran af föður sínum Ali Khamenei en sú ákvörðun veikir vonir um breytt stjórnarfar. Frá því stríðið hófst hefur olíuverð hækkað um í kringum fjörutíu prósent. Persaflóaríkin hafa dregið verulega úr framleiðslu og flutningi olíu á þeim tíma. Fyrir um viku síðan lokuðu Íranar til að mynda fyrir skipaumferð um Hormússund en stór hluti af hráolíuframleiðslu heimsins fer þar í gegn. „Ég held að þessi vika muni svona skera úr um hvort að við séum að sjá skammtímaskell eða það sem við getum kallað orkukreppu,“ segir Jón Bjarki Bentsson aðalhagfræðingur Íslandsbanka. Á Íslandi hafa þegar sést hækkanir á bensínverði. Jón Bjarki segir að ef stríð dregst á langinn muni hækkanir sjást víðar, svo sem í flugfargjöldum. „Ef að þessu heldur áfram eitthvað fram á vorið þá verðum við farin að sjá alvöru áhrif á birgðakeðjur, á framleiðslukostnað og á taktinn í heimshagkerfinu.“ Hækkanirnar koma til með að hafa áhrif á verðbólgu. Í næstu viku er vaxtaákvörðun hjá Seðlabankanum og segir Jón Bjarki erfitt fyrir bankann að horfa fram hjá því sem er að gerast. „Fyrir lítið opið hagkerfi eins og okkar, þá eru þetta bara alls ekki góðar fréttir. Á sama tíma þá hefur svona skellur neikvæð áhrif á hagvöxt, þannig að það er slæm blanda.“ Íran
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bensín og olía Skipaflutningar Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira