„Höfum ekki unnið nóg“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 10. mars 2026 00:01 Donald Trump Bandaríkjaforseti gerði mikið úr „velgengni“ Bandaríkjahers í Íran undanfarna daga á blaðamannafundi í dag. AP Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að átökin við Íran verði yfirstaðin „innan tíðar“ en að Bandaríkin eigi enn eftir að hrósa fullnaðarsigri. Hann segir Bandaríkjaher hafa tekist að eyðileggja allt að níutíu prósent af hernaðarinnviðum í landinu undanfarna tíu daga.
Trump ávarpaði þingmenn Repúblikana í Flórída fyrr í kvöld þar sem hann ræddi stöðu átakanna í Íran en tíu dagar eru síðan Ísraels- og Bandaríkjaher hófu að gera árásir á Íran. Átökin hafa síðar dreift úr sér um stóran hluta Mið-Austurlandanna með loftárásum Írana og Ísraela og Bandaríkjamanna á víxl. Sagði árásirnar til komnar vegna hótana Írana Á fundinum lýsti Trump aðgerðum Bandaríkjahers sem skammtímaaðgerð til að „losna við nokkra mjög illa menn“. Aðgerðin væri í raun „smávægilegur útúrdúr“ úr hans dagskrá. Þá sagðist hann hafa fyrirskipað loftárásirnar í lok febrúar vegna þess að Íranir hefðu hótað að gera árásir á Bandaríkin innan viku. „Þeir áttu miklu fleiri eldflaugar en nokkurn hefði grunað,“ sagði Trump. Á undanförnum tíu dögum hefði Bandaríkjaher aftur á móti eyðilagt áttatíu prósent af eldflaugavörpum og sjóher Íran. „Við höfum þegar unnið á svo marga vegu, en við höfum ekki unnið nóg,“ sagði hann við þingmennina. „Við höldum ótrauð áfram, staðráðin í að ná fullnaðarsigri og að útrýma þessari langvarandi ógn í eitt skipti fyrir öll,“ sagði Trump og vísaði þar væntanlega til kjarnorkuáætlunar klerkastjórnarinnar. Hann minntist á efnahagslegu áhrifin sem stríðið hefur haft í för með sér. Líkt og fram hefur komið hefur verð á hráolíu ekki verið hærra í fjögur ár en frá því að stríðið hófst hefur olíuverð hækkað um í kringum fjörutíu prósent. Um bandaríska hlutabréfamarkaðinn, sem tók dýfu í dag, sagði hann að hann kæmist aftur á flug innan tíðar. „Um leið og við erum búin að losa okkur við allt sem við erum að vinna í núna... Við höfðum í raun ekkert val.“ Ekki sagt hvern hann vilji í stað Khamenei Á blaðamannafundi að fundinum loknum ítrekaði Trump „velgengni“ Bandaríkjahers í Íran og sagði hernaðaraðgerðina svo gott sem yfirstaðna. Herinn hafi skotið á meira en fimm þúsund skotmörk, þar á meðal mikilvæga hernaðarinnviði. „Eldflaugamáttur þeirra hefur minnkað í um tíu prósent, jafnvel minna,“ sagði hann. Þá sagði hann síðar að drónamáttur ríkisins væri um 25 prósent af því sem hann hefði verið fyrir árásirnar. Blaðamenn, þar á meðal blaðamaður BBC á staðnum, hafa dregið í efa réttmæti upplýsinga sem hann hefur gefið um eyðileggingu í Íran. Aðspurður sagðist hann enn og aftur reikna með að árásum Bandaríkjahers lyki innan tíðar. „Bráðum, hugsa ég. Allt sem Íranir eiga er fyrir bí, meira að segja forystan.“ Trump sagði í samtali við New York Post fyrr í dag að hann væri óánægður með val Írana á nýjum leiðtoga en Mojtaba Khamenei, sonur Ali Khamenei, nýfallins æðstaklerks Íran, hefur tekið við embættinu. Trump hefur ekkert gefið út um hans óskir í þeim efnum en sagst vilja hafa áhrif í vali á næsta þjóðarleiðtoga.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Fleiri fréttir Maxwell fær ekki dómnum hnekkt Mynd af sverði birt um hálftíma fyrir morðið Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Yfirmaður CIA í Moskvu Hvirfilbylur olli usla í sunnanverðu Frakklandi Sögulega óvinsæll Trump en stríðið er óvinsælla Heita milljónum til að leysa fjölda morða og mannshvarfa Saka Svíþjóðardemókrata um að „pissa í eigið tjald“ „Með ljótar tennur og þunnt hár“: Orðin langþreytt á athugasemdum um útlitið Myrtu fjörutíu manns í kirkju Hyggjast ógilda vegabréfsáritanir allt að 200 þúsund hælisleitenda Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Tólf handteknir í tengslum við áreksturinn í Bretlandi Liðskona Pussy Riot segist hafa unnið fyrir rússnesku leyniþjónustuna „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar líklega ekki með í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Sjá meira