Sport

Truflaður af Aroni Pálmars i við­tali

Árni Gísli Magnússon skrifar
Ómar Darri lætur vaða í átt að marki í leik með FH
Ómar Darri lætur vaða í átt að marki í leik með FH Vísir/Anton

Ómar Darri Sigurgeirsson, leikmaður FH, átti góðan leik og skoraði sjö mörk í fimm marka sigri gegn KA norðan heiða í kvöld sem kallaði á stutt viðtal við skyttuna ungu.

Hvernig líður þér eftir leikinn?

„Mjög vel. Þetta var náttúrulega erfiður leikur“, Ómar var ekki kominn lengra í viðtalinu þegar Aron Pálmarsson, aðstoðarþjálfari FH, gekk fram hjá og sagði í léttum tón „ekki segja neitt hérna, ekkert!“ Ómar gaf lítið fyrir þessi tilmæli landsliðsfyrirliðans fyrrverandi og hélt áfram: „Erfiður útivöllur þannig við þurfum að mæta vel í þennan leik og af krafti eins og við gerðum“.

Talandi um kraft, þá er það einna helst það lýsingaorð sem kemur upp í hugann þegar minnst er á Ómar Darra sem er einungis 18 ára gamall en er gríðarlega kraftmikill og lætur til sín taka í sóknarleiknum en hann skoraði sjö mörk í dag úr tólfskotum.

„Ég er náttúrulega byggi minn sóknarleik upp á krafti og mæti alltaf með kraft þegar ég er inni á vellinum en við náttúrulega þurfum bara að mæta með krafti í alla leiki ef við ætlum að vinna þá.“

„Þetta var smá basl þarna í byrjun sko, fyrstu tíu allavega, en síðan komust við inn í leikinn undir lok fyrri og svo mætum við bara gíraðir í seinni og mér fannst við bara vera miklu betri í seinni hálfleik.“

FH mætir ÍR í lokaumferðinni sem fram fer á fimmtudag þar sem FH á möguleika á toppsætinu með sigri og treysta sömuleiðis á að Valur tapi stigum gegn ÍBV, á meðan ÍR er í botnsætinu að berjast fyrir lífi sínu.

„Það verður líklegast erfiður leikur en við ætlum bara að slökkva í þeim“, sagði Ómar ákveðinn að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×