Íranir enn vígreifir Hólmfríður Gísladóttir skrifar 10. mars 2026 06:42 CNN ræddi við Kamal Kharazi, ráðgjafa embættis æðstaklerksins í utanríkismálum, í Tehran í gær. Myndin er frá 2004. Getty/Chung Sung-Jun Byltingavörðurinn í Íran segir að Íranir muni ákveða hvenær átökum lýkur, ekki Bandaríkin eða Ísrael. Þá muni stjórnvöld þar í landi ekki leyfa „einum dropa“ af olíu að komast frá Mið-Austurlöndum ef árásir halda áfram.
Þetta kom fram í yfirlýsingu sem byltingavörðurinn sendi frá sér í gær, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að aðgerðum Bandaríkjamanna og Ísraelsmanna færi að ljúka. Þess ber að geta að yfirvöldum vestanhafs bar ekki saman um það í gær hversu langt menn teldu sig komna í aðgerðunum. Donald Trump sagði meðal annars í samtali við CBS News að hann teldi stríðinu vera lokið að mestu en á sama tíma birti varnarmálaráðueytið færslu á X þar sem sagði að það væri rétt að byrja. Seinna um daginn sagði Trump: „Við höfum þegar unnið á marga vegu en við höfum ekki unnið nóg.“ Þá sagði forsetinn ýmist að hernaðarmætti Íran hefði verið útrýmt eða.. ja, svona næstum því. CNN ræddi við Kamal Kharazi, ráðgjafa embættis æðstaklerksins í utanríkismálum, í Tehran í gær. Hann sagði þarlend stjórnvöld reiðubúin fyrir langvarandi átök. Þá væru viðræður útilokaðar á þessu stigi málsins, þar sem Trump hefði reynst svikull og tvívegis ráðist gegn Íran á meðan viðræður hefðu staðið yfir. Kharazi gaf til kynna að átökum myndi líklega ekki ljúka fyrr en Mið-Austurlö-nd og önnur ríki undir efnahagslegum þrýstingi, þrýstu á Bandaríkjamenn að hætta.
Íran Bandaríkin Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Ísrael Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Sjá meira