Sjúklingar enn á göngum bráðamóttökunnar Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 10. mars 2026 13:31 Hundrað og áttatíu starfsmenn bráðamóttökunnar mættu á fundinn þar sem krafist var tafarlausra aðgera. Vísir/Lýður Valberg Sjúklingar liggja enn á göngum bráðamóttöku Landspítalans mánuði eftir að starfsfólkið lýsti ófremdarástandi þar og krafðist aðgerða. Formaður Félags bráðalækna bindur vonir við að boðaðar aðgerðir stjórnvalda hafi áhrif með vorinu en ljóst sé að bregðast hefði þurft miklu fyrr við.
Starfsfólk bráðamóttökunnar krafðist þess að stjórnvöld gripu strax til aðgerða til að bæta ástandið á bráðamóttökunni á fjölmennum fundi sem haldinn var 11. febrúar síðastliðinn. Starfsfólkið lýsti hræðilegu ástandi á bráðamóttökunni þar sem öryggi sjúklinga og starfsfólks væri lagt í hættu á hverjum degi. Fjöldi sjúklinga lægi á göngum og ekki væri hægt að tryggja sýkingavarnir. Í framhaldinu sagði Alma Möller heilbrigðisráðherra að unnið væri að því að leysa vandann, meðal annars með því að taka í notkun fjölda nýrra hjúkrunarrýma. Unnur Ósk Stefánsdóttir formaður Félags bráðalækna segir ástandið enn erfitt á bráðamóttökunni og að boðaðar aðgerðir séu ekki farnar að hafa veruleg áhrif. „Staðan er enn þá mjög slæm og það er enn þá fullt af fólki sem liggur á göngum bráðamóttökunnar og kemst ekki neitt og biðin eftir að komast upp á deildina er enn þá líka mjög löng. Það virðist nú samt vera svo að hjólin hafi eitthvað farið að snúast í kjölfarið á þessum umrædda fundi.“ Hún segist þannig vonbetri en áður um að ástandið muni batna. „Þetta er svo gríðarlega flókinn vandi. Við gerum okkur alveg grein fyrir því að hann leysist ekki á einni nóttu en ég vona að með vorinu og hækkandi sól að þetta muni, allavega eitthvað muni gerast og þetta muni batna. Þolinmæðin sé þó ekki endalaus. „Auðvitað hefðum við viljað sjá þetta gerast hraðar og við hefðum líka bara viljað að aðgerðirnar hefðu komið fram miklu, miklu fyrr og það hefði verið byrjað að gera eitthvað í þessu bara fyrir áratugum þegar að ástandið var byrjað.“
Landspítalinn Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Heilbrigðismál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Katla skelfur Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira