Menntun fyrir framtíðina Inga Sæland skrifar 11. mars 2026 08:02 Ef við ætlum að innleiða metnaðarfulla atvinnustefnu verðum við að byrja þar sem öll verðmætasköpun á rætur sínar. Í menntun. Menntakerfið er ekki aukaatriði í framtíðarsýn Íslands. Það er burðarásinn. Án skýrra samfélagslegra markmiða um öfluga grunnmenntun á öllum skólastigum munum við ekki ná raunverulegum árangri. Óásættanleg staða Staðan í menntakerfinu kallar hins vegar á skýr og markviss viðbrögð. Hlutfall ungmenna sem ljúka námi einungis með grunnskólapróf er hærra hér en að meðaltali í OECD. Þá er hlutfall nemenda í verk- og starfsnámi með því lægsta í Evrópu. Við sjáum líka að hlutfall háskólanema í STEM-greinum (raunvísindi, verkfræði og stærðfræði) og heilbrigðisvísindum er lægra en á öðrum Norðurlöndum. Árangur í PISA hefur farið lækkandi og hlutfall afburðarnemenda er lægra en víða annars staðar. Þessi mynd segir okkur einfaldlega eitt. Grunnstoðir menntakerfisins eru ekki nægilega sterkar til að bera þá framtíð sem við viljum byggja. Við þurfum því sameiginlegt markmið og aðgerðir. Að menntakerfið, starfsfólk skóla, atvinnulífið og hið opinbera vinni saman að uppbyggingu þekkingardrifins hagkerfis sem skapar verðmæti, eykur lífsgæði og styrkir samkeppnishæfni Íslands til framtíðar. En til að svo megi verða verðum við að byrja á byrjuninni. Allir krakkar þurfa traustan grunn í læsi og stærðfræði. Það er jarðvegurinn sem nýsköpun, sjálfbærar lausnir og ný tækni vaxa upp úr. Fjórar aðgerðir Þess vegna er mikilvægt að huga m.a. að fjórum aðgerðum sem snúast um að efla STEM-kennslu og búa skólum og kennurum raunhæf skilyrði til árangurs. Sjálfsagt er að flétta skapandi greinum inn í þessa nálgun. Í fyrsta lagi þarf að endurskoða aðalnámskrár skóla með það að markmiði að auka vægi STEM-greina. Viðmiðunarstundaskrá grunnskóla þarf að uppfæra þannig að tækifæri til kennslu í þessum greinum verði meiri. Einnig þarf endurskoða viðmið um einingafjölda og kjarnafög á framhaldsskólastigi og gefa út viðmiðunarnámsbrautir með sérhæfingu í STEM og heilbrigðistengdu námi. Í öðru lagi þarf að styrkja kennaramenntun og símenntun með aukinni áherslu á STEM. Það þarf að greina betur núverandi framboð, meta hvað gagnast kennurum best og setja fram skýra áætlun um aukna STEM-færni í grunnnámi og endurmenntun. Jafnframt þarf að huga að uppbyggingu á styttri, hagnýtum og viðurkenndum námsleiðum (e.micro-credentials) fyrir störf í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Atvinnulífið hefur kallað eftir slíkri vinnu. Í þriðja lagi þarf að efla námsefni, kennsluleiðbeiningar og aðstöðu til STEM-kennslu. Markmiðið er að kennarar hafi aðgang að afburða kennslueiningum og faglegum leiðbeiningum sem draga úr undirbúningsálagi og skapa betri aðstæður fyrir ólíkar þarfir nemenda. Þar leggjum við líka rækt við framtíðarfærni s.s. gagnrýna hugsun, upplýsingalæsi, tæknilæsi og ábyrga tækni- og gervigreindarnotkun. Í fjórða lagi þurfum við að fjölga nemendum í iðn- og tækninámi á næstu árum. Þar skiptir gríðarlegu máli að aðstaða fylgi metnaðinum. Nýverið undirritaði ég samning um nýjan 30.000 m² Tækniskóla í Hafnarfirði. Þá hefur lengi staðið til að bæta verknámsaðstöðu í fjórum framhaldsskólum utan höfuðborgarsvæðisins. Menntun er undirstaða verðmætasköpunar Þetta er hins vegar ekki spurning um fögur áform eða fleiri skýrslur. Þetta er spurning um að styrkja grunninn, lyfta gæðum náms, efla færni og opna fleiri leiðir inn í störf og nám sem samfélagið þarf á að halda. Menntun er undirstaða verðmætasköpunar og hún á að vera sameiginlegt verkefni okkar allra. Höfundur er mennta- og barnamálaráðherra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Inga Sæland Skóla- og menntamál Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira