Ráðist á þrjú skip á Persaflóa í nótt Samúel Karl Ólason skrifar 11. mars 2026 08:52 Áhafnir fjölda olíuflutningaskipa og flutningaskipa bíða eftir því að komast gegnum Hormuz-sund. Getty/Anadolu Ráðist var á að minnsta kosti þrjú flutningaskip á og við Persaflóa í grennd við Hormuz-sund í nótt. Tvö þeirra urðu fyrir tiltölulega litlum skemmdum en áhöfn þess þriðja þurfti að yfirgefa skipið eftir að eldur kviknaði þar um borð. Svo virðist sem skipin hafi orðið fyrir eldflaugum en það hefur ekki verið staðfest.
Samkvæmt UKMTO, sem er upplýsingaveita og eftirlitsstofnun á vegum breska sjóhersins, tilkynntu skipstjórar skipanna þriggja að þau hefðu orðið fyrir einhvers konar árásum. Skipið sem var yfirgefið var á Hormuz-sundi, þar sem það er hvað þrengst, en hin tvö voru innar í Persaflóa. Skipstjóri eins flutningaskips til viðbótar tilkynnti í nótt að hafa heyrt hávært skvamp og sprengingu nærri skipi sínu undan ströndum Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Íranir hafa ekki lýst yfir ábyrgð á árásunum en þeir hafa áður ráðist á skip á svæðinu á undanförnum dögum. Heita því að leyfa ekki siglingar um sundið Rúmlega fimmtungur olíu og jarðgass heimsins fer um Hormuz-sund en þar að auki fara fjölmörg flutningaskip um svæðið. Siglingar þar í gegn hafa verið mjög takmarkaðar síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir sínar á Íran fyrir um tólf dögum síðan. Ráðamenn í Íran hafa heitið því að leyfa ekki siglingar olíuflutningaskipa um sundið vegna árásanna. Hér má sjá útskýringu um það hvert mest af þeirri olíu sem flutt er um Hormuz-sund fer.Getty/Elif Acar, Anadolu Þetta hefur komið niður á olíuframleiðslu í Mið-Austurlöndum og olíuverði. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur hótað Írönum öllu illu, haldi þeir árásum á skip á svæðinu áfram og leyfi ekki siglingar um Hormuz-sund. Þá hefur hann einnig kallað eftir því að skipstjórar olíuflutningaskipa láti bara vaða og sigli gegnum Hormuz-sund, sama hvernig öryggisástandið þar er. U.S. forces eliminated multiple Iranian naval vessels, March 10, including 16 minelayers near the Strait of Hormuz. pic.twitter.com/371unKYiJs— U.S. Central Command (@CENTCOM) March 10, 2026 Bandaríkjamenn sögðust í gærkvöldi hafa grandað sextán bátum sem Íranir gætu notað til að koma tundurduflum fyrir á Hormuz-sundi og gera siglingar þar um enn erfiðari. Sjá einnig: Hafi grandað fjölda skipa á örfáum klukkustundum AP fréttaveitan hefur eftir eftirlitsaðilum að frá 8. mars hafi sjö olíuflutningaskipum verið siglt um Hormuz-sund. Þar af tengjast fimm klerkastjórninni í Íran og mun þeim hafa verið siglt gegnum sundið eftir að búið var að slökkva á staðsetningarbúnaði þeirra, sem er algengt innan „skuggaflotans svokallaða“. Hann er skipaður gömlum olíuflutningaskipum sem ríki eins og Rússland, Íran og Venesúela hafa notað til að komast hjá viðskiptaþvingunum og refsiaðgerðum.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Ísrael Skipaflutningar Bensín og olía Tengdar fréttir Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að dagurinn í dag verði sá ákafasti hingað til, hvað varðar árásir Bandaríkjanna á Íran. Ráðamenn í Íran segjast ætla að berjast áfram en ráðgjafar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, eru sagðir hvetja hann til að finna leið til að binda enda á stríðið. 10. mars 2026 13:39 Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Stríð geisar í Mið-Austurlöndum, sem ógnar lífi og limum íbúa á svæðinu, orkubúskap heimsins og pólitískum- og efnahagslegum stöðugleika almennt. Þá er fátt eitt talið til. Tilefnislaust, segja sumir. Tímabært, segja aðrir. Eitt þykir víst; lagt var í styrjöldina án djúprar greiningar á mögulegum afleiðingum, sem gætu orðið gríðarlega umfangsmiklar og náð langt út fyrir Íran og nágrannaríkin. Enginn virðist vita hvert endamarkið er né hvenær því verður mögulega náð. 9. mars 2026 07:05 Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa veitt Indlandi 30 daga undanþágu til að kaupa olíu frá Rússlandi, vegna átakanna sem nú standa yfir í Mið-Austurlöndum. 6. mars 2026 06:57 Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Hernaðaryfirvöld í Íran skutu eldflaug á bandarískt olíuflutningaskip á Persaflóa, ef marka má írönsku fréttastofuna Tasnim. Fréttastofan segir eld loga í skipinu. 5. mars 2026 08:46 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira
Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir að dagurinn í dag verði sá ákafasti hingað til, hvað varðar árásir Bandaríkjanna á Íran. Ráðamenn í Íran segjast ætla að berjast áfram en ráðgjafar Donalds Trump, Bandaríkjaforseta, eru sagðir hvetja hann til að finna leið til að binda enda á stríðið. 10. mars 2026 13:39
Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Stríð geisar í Mið-Austurlöndum, sem ógnar lífi og limum íbúa á svæðinu, orkubúskap heimsins og pólitískum- og efnahagslegum stöðugleika almennt. Þá er fátt eitt talið til. Tilefnislaust, segja sumir. Tímabært, segja aðrir. Eitt þykir víst; lagt var í styrjöldina án djúprar greiningar á mögulegum afleiðingum, sem gætu orðið gríðarlega umfangsmiklar og náð langt út fyrir Íran og nágrannaríkin. Enginn virðist vita hvert endamarkið er né hvenær því verður mögulega náð. 9. mars 2026 07:05
Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa veitt Indlandi 30 daga undanþágu til að kaupa olíu frá Rússlandi, vegna átakanna sem nú standa yfir í Mið-Austurlöndum. 6. mars 2026 06:57
Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Hernaðaryfirvöld í Íran skutu eldflaug á bandarískt olíuflutningaskip á Persaflóa, ef marka má írönsku fréttastofuna Tasnim. Fréttastofan segir eld loga í skipinu. 5. mars 2026 08:46