Opna menningarmiðstöð í Smáralind Atli Ísleifsson skrifar 11. mars 2026 13:51 Fulltrúar menningar, forstjóri Heima og fulltrúar meirihluta f.v.: Sigurlaug Jóna Hannesdóttir, útibússtjóri í Lindasafni, Védís Hervör Árnadóttir, umbóta- og þróunarstjóri, Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, Orri Vignir Hlöðversson formaður bæjarráðs, Soffía Karlsdóttir, forstöðumaður menningarmála, Elísabet Sveinsdóttir, formaður menningar- og mannlífsnefndar. Kópavogsbær og Heimar hf. hafa gert með sér samning um uppbyggingu menningarmiðstöðvar í Smáralind. Áætluð opnun nýrrar menningarmiðstöðvar er vorið 2027. Samkvæmt svörum frá Kópavogsbæ er heildarrekstrarkostnaðurinn áætlaður rúmar 140 milljónir króna á ári.
Í tilkynningu frá Kópavogsbæ segir að verkefnið sé þróað af Kópavogsbæ í samstarfi við Heima og að um sé að ræða framsýna hugsun á sviði menningarmála þar sem fléttast saman nútímabókasafn í bland við menningarupplifun og fjölbreytta þjónustu. Þá segir að verkefnið sé jafnframt hluti af stærri þróun menningarinnviða hjá Kópavogsbæ sem samþykkt hafi verið í bæjarstjórn í gær þar sem áætlað sé að tveir nýir menningarkjarnar rísi. Annars vegar í Kórnum og hins vegar í Smáralind. Haft er eftir Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra að Kópavogsbær sé öflugur menningarbær og státi þegar af einu besta bókasafni landsins í Hamraborg. „Menningarmiðstöðin mun efla starfsemi þess enn frekar og auka um leið aðgengi að menningunni í Kópavogi. Menningarmiðstöð í Smáralind og nýtt bókasafn í efri byggðum þýðir líka bætt aðgengi íbúa að bókum, sem er gríðarlega mikilvægt á tímum þar sem dregið hefur úr lestri barna og ungmenna. Þá hefur uppbygging íbúða og þjónustu í Smárahverfi undanfarin ár stutt við svæðið sem annan af tveimur miðpunktum bæjarins og mikilvægt að menningin eigi þar samastað. Á þessu kjörtímabili höfum við lagt ríka áherslu á að efla enn frekar menninguna í Kópavogi og ég er afar stolt af þeim breytingum sem við höfum ráðist í með endurnýjun á aðalsafni og Náttúrusafni Kópavogs. Ég er sannfærð um að íbúar Kópavogs munu taka menningarmiðstöðinni fagnandi, rétt eins og þeim breytingum sem við höfum þegar ráðist í, “ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs. Í tilkynningunni segir skrifstofa umbóta og þróunar hafi leitt undirbúning verkefnisins og segi Védís Hervör Árnadóttir, umbóta- og þróunarstjóri þetta eitt mesta framfaraskref í uppbyggingu menningarinnviða í langan tíma, eða frá því að menningarkjarninn við Hamraborg reis þar sem nú standi Salurinn, Gerðarsafn, Bókasafn Kópavogs og Náttúrusafn Kópavogsbæjar. „Bókasöfn gegna nýju hlutverki í breyttum heimi, eru heimili að heiman, vettvangur viðburða og afdrep í erli samtímans. Menningarmiðstöð í Smáralind er því frábær viðbót við þá þjónustu og menningarframboð í Kópavogsbæ. Við sjáum fjölmörg spennandi tækifæri í nýju rými þar sem við ætlum að sameina nútímabókasafn, menningu, upplifun, starf og leik. Við munum nýta okkar þekkingu en jafnframt horfa til þess er best gerist í nágrannalöndunum í söfnum á borð við Oodi í Helsinki og Deichman í Osló,“ er haft eftir Védís Hervör Árnadóttir.„Öflugt starfsfólk menningarmála í Kópavogi hefur undirbúið verkefnið af fagmennsku og með hag íbúa að leiðarljósi. Við erum spennt fyrir samstarfinu við Heima og hlökkum til að klippa á borðann í nýrri menningarmiðstöð.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Smáralind Kópavogur Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Verði að hætta að benda hver á annan Viðskipti Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira