Hjúkrunarfræðingurinn sem skuldar meira, græðir helling og vill kíkja í pakka Haraldur Ólafsson skrifar 12. mars 2026 09:00 Berglind Guðmundsdóttir skrifar í Vísi 10. mars sl. sögu um hjúkrunarfræðing sem tók verðtryggt húsnæðislán. Lánið stóð í 53 milljónum árið 2022, en er nú í 61 milljón. Afborganir eru að sliga hjúkrunarfræðinginn. Skoðum þetta nánar. Frá janúar 2022 til jafnlengdar í ár hefur húsið sem hjúkrunarfræðingurinn á hækkað í verði um 26 milljónir, að því gefnu að hann hafi skuldað 70% af verðmæti hússins árið 2022 og verð þess hafi fylgt húsnæðisvísitölu. Lánið hækkaði á sama tíma um 8 milljónir, svo hjúkrunarfræðingurinn hefur auðgast um 18 milljónir á þessum fasteignaviðskiptum á umræddu tímabili. Einhverjum þætti eflaust sanngjarnt að lífeyrissjóðurinn sem lánaði fyrir kaupunum fengi enn stærri hlut í hagnaðinum en hann fékk, en við látum það liggja milli hluta. Berglind vill kíkja í pakkann hjá Evrópusambandinu. Skoðum hann. Raunvextir á íbúðalánum á Íslandi, sem er eðlilegasti mælikvarði á leiguverð peninga, eru oft 1-2 prósentustigum yfir því sem algengt er í nágrannalöndunum. Ekki eru vísbendingar um að það breytist þótt Ísland gangi í Evrópusambandið. Húsnæðisvextir eru nefnilega furðu breytilegir milli evrulanda og oftast hægt að finna svæði þar sem vextir umfram verðbólgu eru á svipuðu róli eða hærri en á Íslandi. Það vill reyndar til að þessa dagana eru raunvextir í Svíþjóð lægri en víðast í evrulöndum. Í Svíþjóð er notuð sænsk króna sem er örmynt miðað vi evru. Stærð gjaldmiðla er nefnilega afleit vísbending um vexti. Það er fleira í pakkanum. Háir reikningar, hver ofan á öðrum. Félagsgjöld í sambandinu, kostnaður við stækkun stjórnkerfis á Íslandi, kostnaður við fyrirhugaða hervæðingu, kostnaður við að reka samfélag í frumskógi reglna sem ræktaður er í kringum risastór samfélög og kostnaður sem hlýst af tollastríðum sem ógerningur er að meta, en gæti orðið mikill. Allt þetta hleypur á hundruðum milljarða og hjúkrunarfræðingurinn á Íslandi fengi að borga sinn hlut, ef Ísland væri innanborðs í Evrópusambandinu. Sjálfsagt er líka að velta fyrir sér stöðu hjúkrunarfræðings í t.d. í hjarta evrulands, Frakklandi. Hefði sá franski fengið lán á stærð við það íslenska, til 25 ára, hefðu 70-90% af nettó launum hans farið í afborganir og vexti og það hefði skilað honum láni sem stæði í um 46 milljónum. Húsnæðið hefur lækkað í verði um 2 milljónir. Eftir stendur að franski hjúkrunarfræðingurinn hefur borgað lunga launa sinna af láninu og eignast um 5 milljónir í fasteign, en sá íslenski hefur borgað svipað og sá franski, en mun lægra hlutfall af laununum sínum og eignast um 18 milljónir í fasteign. En allt er þetta óraunhæft að því leyti að franska hjúkrunarfræðingnum, sem er með um 50-60% af launum þess íslenska, hefði verið vísað kurteislega út úr í bankanum í Frakklandi ef hann hefði beðið um lán í líkingu við það sem sá íslenski fékk. Hjúkrunarfræðingurinn á Íslandi er að sligast undan afborgunum. Það er skiljanlegt, því þetta er hátt lán. Besta leiðin áfram er að hafa augun opin fyrir ódýrri fjármögnun á Íslandi og að vona að forsætisráðherra efni kosningaloforðið um að berja niður vexti, jafnvel þótt það fækki fylgjendum aðildar Íslands að Evrópusambandinu, sem enn trúa á ódýra peninga frá jólasveininum í sambandinu. Það vill reyndar svo til að forsenda aðildar að evru eru lágir vextir, sem ríki þurfa að ná á eigin spýtur, en afleiðingarnar af inngöngu í Evrópusambandið eru háir reikningar til íslenskrar alþýðu. Höfundur er formaður Heimssýnar, félags um fullveldi Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haraldur Ólafsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir Skoðun Halldór 16.05.2026 Halldór Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind Skoðun Skoðun Skoðun Nei, gervigreindartónlist er ekki lýðræðisafl Mikael Lind skrifar Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar