Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. mars 2026 09:07 Allar verslanir Kappahl á Íslandi munu bjóða upp á fatnað fyrir konur, karla og börn, auk Newbie fyrir þau yngstu. Verslun Kappahl í Smáralind verður opnuð klukkan 12, laugardaginn 14. mars næstkomandi. Á sama tíma verður opnar vefverslunin kappahl.is.
Frá þessu greinir í fréttatilkynningu frá LKA19 ehf., sem er umboðsaðili Kappahl, Newbie, Mango og Gina Tricot á Íslandi. Verslunin í Smáralind verður í sama rými og Lindex var áður en félagið S4S ehf. tók við Lindex-vörumerkinu af LKA19 þann 1. mars síðastliðinn. LKA 19 ehf. er í eigu hjónanna Alberts Þórs Magnússonar og Lóu Dagbjartar Kristjánsdóttur. „Þetta eru mjög spennandi tímamót,“ sagði Albert í samtali við fréttastofu í morgun. Hann segir fjölda fólks beggja vegna Atlantshafsins hafa unnið að opnun verslana Kappahl og Newbie hér á landi undanfarnar vikur og þá sé síðasta vörusendingin fyrir opnun væntanleg í hús á morgun. Kappahl er sænskt vörumerki og 345 samnefndar verslanir að finna í Svíþjóð, Noregi, Finnlandi, Póllandi og Bretlandi. Um er að ræða eitt af þekktustu tískuvörumerkjum Skandinavíu, sem selur föt fyrir konur, karla og börn. Albert og Lóa segja óhætt að tala um fjölskyldufyrirtæki, enda sé ótrúlegur samhugur meðal starfsmanna. Hjónin vinna einnig að opnun Mango í Kringlunni og segir Albert tíðinda að vænta á næstunni hvað það varðar. Næsta verslun verður opnuð á Selfossi, nánar tiltekið laugardaginn 21. mars, og þá segir Albert að fregnir muni berast af opnun annarra versluna á næstunni; á Akureyri, Akranesi, Egilsstöðum, í Reykjanesi og í Kringlunni. Allar verslanirnar munu bjóða upp á föt fyrir konur, karla og börn og þá má gera ráð fyrir sérstöku rými þar sem finna má vörumerkið Newbie, sem er fyrir þau allra yngstu. Albert segir mikla vinnu hafa verið lagða í verkefnið og nefnir meðal annars að hér á landi séu staddir þrír útlitssérfræðingar á vegum Kappahl, til að sjá um uppsetningu verslunarinnar í Smáralind og þjálfa íslenskt starfsfólk. „Við höfum fyllstu trú á því að við munum koma viðskiptavinum okkar skemmtilega á óvart,“ segir Albert. Hann staðfestir einnig að öllum fyrrverandi starfsmönnum Lindex hafi verið boðin áframhaldandi vinna. „Það hafa allir starfsmennirnir þegið það að stíga þetta skref með okkur,“ segir hann. „Þetta er orðið ein stór fjölskylda sem heldur áfram undir nýjum merkjum og með bjartsýni að leiðarljósi. Við erum öll ótrúlega spennt fyrir framhaldinu.“
Neytendur Verslun Tíska og hönnun Smáralind Kópavogur Tengdar fréttir Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Knattspyrnudeild Selfoss og umboðsaðilar Kappahl á Íslandi hafa undirritað samstarfssamning til fimm ára. Kappahl verður mikilvægur bakhjarl félagsins og knattspyrnuhöllin á Selfossi nefnd í höfuðið á tískumerkinu. 19. febrúar 2026 12:02 Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Nýjar verslanir Lindex í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri verða opnaðar á vormánuðum. Fyrirtækið S4S tekur formlega við Lindex-umboðinu 1. mars næstkomandi og opnar fyrir netsölu í gegnum lindex.is í byrjun mars, þar sem bilið verður brúað fram að opnun verslananna. 20. febrúar 2026 07:49 Mest lesið Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Viðskipti innlent Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Nýtt á Íslandi: Auglýsingalausn sem sameinar sjónvarp og samfélagsmiðla Samstarf „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ Viðskipti innlent Enn ríður Indó á vaðið Viðskipti innlent Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Viðskipti innlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Fleiri fréttir Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Sjá meira
Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Knattspyrnudeild Selfoss og umboðsaðilar Kappahl á Íslandi hafa undirritað samstarfssamning til fimm ára. Kappahl verður mikilvægur bakhjarl félagsins og knattspyrnuhöllin á Selfossi nefnd í höfuðið á tískumerkinu. 19. febrúar 2026 12:02
Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Nýjar verslanir Lindex í Kringlunni, Smáralind og á Akureyri verða opnaðar á vormánuðum. Fyrirtækið S4S tekur formlega við Lindex-umboðinu 1. mars næstkomandi og opnar fyrir netsölu í gegnum lindex.is í byrjun mars, þar sem bilið verður brúað fram að opnun verslananna. 20. febrúar 2026 07:49