Af hverju sjáum við oft ekki það sem er beint fyrir framan okkur? Inga María Ólafsdóttir skrifar 18. mars 2026 07:01 Flestir treysta augum sínum. Við upplifum heiminn fyrst og fremst í gegnum sjónina og finnst því oft sjálfsagt að það sem við sjáum sé einfaldlega það sem er til staðar. En rannsóknir í taugavísindum og sálfræði hafa sýnt fram á að við sjáum í raun miklu minna en við höldum. Á hverju augnabliki berast heilanum gífurlegt magn sjónrænna upplýsinga. Það væri einfaldlega ómögulegt fyrir hann að vinna allt þetta efni jafn ítarlega. Þess vegna hefur þróast í heilanum mjög öflugt síukerfi: athyglin. Athyglin velur hvaða upplýsingar fá forgang í úrvinnslu og hvaða upplýsingar eru að mestu leyti hunsaðar. Þessi eiginleiki getur leitt til fyrirbæris sem kallast athyglisblinda (inattentional blindness). Þá getur fólk misst af hlutum sem eru í raun alveg augljósir, einfaldlega vegna þess að athyglin er bundin annars staðar. Í frægri rannsókn Daniels Simons og Christophers Chabris frá árinu 1999 voru þátttakendur beðnir um að horfa á myndband þar sem tveir hópar leikmanna kasta körfubolta sín á milli. Verkefnið var einfaldlega að telja allar sendingar á milli leikmanna í hvítum bolum. Í miðju myndbandinu gengur einstaklingur í górillubúningi inn á milli leikmannanna, stoppar á miðjum skjánum, snýr sér í átt að myndavélinni, slær sér á bringuna og gengur síðan úr mynd. Ótrúlegt en satt þá tekur stór hluti þátttakenda ekki eftir górillunni. Svipuð fyrirbæri sjást í daglegu lífi. Við höfum líklega flest upplifað að leita að hlut sem virðist vera gufaður upp, aðeins til að uppgötva að hann var beint fyrir framan augun á okkur allan tímann. Þetta gerist því þegar heilinn er stilltur inn á ákveðna tegund upplýsinga getur hann bókstaflega hunsað aðra hluti í sjónsviðinu. Þetta þýðir þó ekki að sjónkerfið sé gallað. Þvert á móti er þetta merki um hversu hagkvæmt það er. Með því að einbeita sér að því sem skiptir máli hverju sinni getur heilinn unnið upplýsingar hraðar og skilvirkar. Vandinn er að við erum oft sannfærð um að við sjáum miklu meira en raun ber vitni. Rannsóknir á sjónrænni athygli hjálpa okkur að skilja betur hvernig heilinn velur úr upplýsingum í flóknu umhverfi. Þær hafa einnig hagnýta þýðingu á mörgum sviðum. Til dæmis skiptir miklu máli að skilja takmarkanir athyglinnar í störfum þar sem fólk þarf að greina mikilvægar upplýsingar í miklu sjónrænu áreiti, eins og í greiningu á röntgen- og segulómmyndum, flugumferð eða öryggiseftirliti. Kannski er mikilvægasti lærdómurinn þó einfaldur. Heilinn sér heiminn ekki eins og myndavél, heldur byggir hann upp túlkun á honum með því að velja, forgangsraða og fylla í eyður. Það sem við tökum eftir er því aðeins lítið brot af öllum þeim upplýsingum sem eru til staðar í umhverfinu. Þegar við horfum í kringum okkur er það því ekki aðeins spurning um hvað er fyrir framan augun á okkur, heldur líka hvað athyglin velur að sjá. Höfundur er lektor við Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík. Heimildir: Simons, D. J., & Chabris, C. F. (1999). Gorillas in our midst: Sustained inattentional blindness for dynamic events. perception, 28(9), 1059-1074. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Háskólar Heilbrigðismál Mest lesið Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skoðun Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Sjá meira