Russell sakar Ferrari um eigingirni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2026 13:47 George Russell fagnar hér sigri í fyrstu keppni tímabilsins. Getty/Kym Illman/ George Russell, ökumaður Mercedes, hefur ásakað Ferrari um „eigingirni“ og „heimsku“ fyrir að koma í veg fyrir breytingar á reglum í Formúlu 1 sem er ætlað að auka öryggi bílanna í ræsingu.
Í fyrstu keppni tímabilsins í síðustu viku í Ástralíu var mikill munur á ræsingargetu bíla á rásmarkinu. Versta atvikið var þegar Franco Colapinto, ökumaður Alpine, rétt náði að forðast það að aka á miklum hraða aftan á hægfara Racing Bull-bíl Liam Lawson. Russell sagði að yfirvaldið hefði reynt að breyta reglunni sem leiddi til þessara vandamála en sagði að Ferrari hefði komið í veg fyrir það, án þess þó að nefna ítalska bílaframleiðandann á nafn. Fór úr fjórða í fyrsta í rásmarkinu Charles Leclerc, ökumaður Ferrari, náði forystunni eftir ræsinguna í Melbourne en hann komst þangað úr fjórða sæti á rásmarkinu, sem undirstrikaði þá tilfinningu að ítalska liðið væri með bestu ræsingarnar í ár. George Russell accuses Ferrari of being “selfish” and “foolish” for opposing changes to the start procedure rule. pic.twitter.com/9uyupJMvYA— F1grids (@F1gridx) March 12, 2026 Russell sagði að vandamálin væru af völdum „mjög sérkennilegrar reglu“ sem takmarkar hversu mikilli orku bíll getur safnað á upphitunarhringnum. Hann sagði að ökumenn í fremri hluta rásmarksins væru þegar taldir af kerfunum vera á hringnum, þannig að æfingaræsing þeirra frá sýndarrásmarkinu teldist með í orkusöfnunarmörkunum og þeir ættu þá í erfiðleikum með að endurhlaða rafhlöðuna. Aftur á móti gátu þeir sem voru aftar ræst sig áður en þeir fóru yfir tímatökulínuna og gátu því endurheimt meiri orku fyrir raunverulega ræsingu. Ferrari hagnaðist á þessu Ferrari hagnaðist á þessu vegna þess að vélin þeirra er með aðra hönnun en vélar annarra framleiðenda og það er því auðveldara fyrir þá að koma henni af stað. Russell sagði: „FIA var að íhuga að breyta þessu en eins og þið getið ímyndað ykkur vildu sum lið sem voru að ná góðum ræsingum það ekki, sem mér finnst bara svolítið heimskt,“ sagði Russell. „FIA vildi bara gera líf okkar auðveldara og fjarlægja þessi orkusöfnunarmörk, en fólk hefur eigingjarnar skoðanir og vill gera það sem er best fyrir sig,“ sagði Russell. FIA hefur vald til að knýja fram breytingu á grundvelli öryggis en hefur hingað til ekki gert það í von um að ná samstöðu. George Russell has accused Ferrari of blocking the FIA from making changes to Formula 1's starting procedure for this weekend's Chinese Grand Prix and being "selfish" and "a little bit silly" for doing so 🗣️ 👀 pic.twitter.com/oIPGTPndIm— Sky Sports F1 (@SkySportsF1) March 12, 2026
Mest lesið „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ Körfubolti Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Ferill Jake Paul í hættu Sport Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Handbolti McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Golf Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti Blaðamannafundur KSÍ: Arnar valdi hóp sem mætir heimsmeisturunum Fótbolti Skrípamark kom í veg fyrir að Ronaldo yrði meistari í gær Fótbolti Heyrðu samskipti dómara í stærsta atviki tímabilsins Enski boltinn Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ Handbolti Fleiri fréttir Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira