Markmiðið enn að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn en hvernig? Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. mars 2026 12:51 Hegseth segir öll spil á hendi Trump. AP/Mark Schiefelbein Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, var vígreifur á blaðamannafundi í Washington nú fyrir stundu og sagði öll spilin á höndum Donald Trump forseta. „
Við erum á uppleið og þeir á niðurleið,“ sagði ráðherrann. Íransstjórn myndi nú aðeins hafa fána Bandaríkjanna og Ísrael, sem væri þeirra „versta martröð“. Hegseth gerði lítið úr stöðu mála á Hormuz-sundi, sagði Bandaríkjamenn vera að „díla“ við það og að menn þyrftu ekki að hafa áhyggjur hvað það varðaði. Búið væri að rústa hernaðarframleiðslu þeirra og sömu sögu væri að segja um forystu landsins. „Örvæntingafullir og í felum; þeir hafa leitað skjóls neðanjarðar. Það er það sem rottur gera,“ sagði ráðherrann. Þá sagði Hegseth menn vita til þess að nýr æðsti leiðtogi, Mojtaba Khamenei, væri særður og líklega „afmyndaður“. Hann benti á að fyrsta yfirlýsing Khamenei hefði hvorki verið hljóð- né myndupptaka, heldur hefði hún verið skrifleg. „Ég held að þið vitið af hverju,“ bætti hann við. Þá endurómaði hann gagnrýni Trump frá því í morgun og sakaði fréttamiðla um að gefa ranga mynd af stöðu mála, í stað þess að fjalla um það hversu vel hefði heppnast til. Hvað verður um úranið? Aðspurður sagði Hegseth að það væri enn aðalmarkmið aðgerðanna að koma í veg fyrir að Íranir eignuðust kjarnavopn. Stjórnvöld vestanhafs geta hins vegar ekki látið af aðgerðum og lýst yfir sigri hvað þetta varðar nema að tryggja og ná í auðgað úran í landinu, sem er talið duga í tíu til sextán kjarnorkuvopn. Aðgerðir til að sækja úranið yrðu afar áhættusamar og myndu fela í sér að hermenn og sérfræðingar yrðu sendir inn í landið, líklega í nokkrar vikur, þar sem finna þyrfti efnið og ná síðan í það á öruggan hátt. Þetta myndi möglega krefjast þess að grafa djúpt undir rústir eftir árásir síðustu daga en þá hafa fregnir einnig borist af því að úranið hafi mögulega verið flutt á brott í aðdraganda árásanna. Greinendur hafa bent á að Mojtaba Khamenei sé töluvert róttækari en faðir hans og þá eigi hann harma að hefna eftir drápin á föður sínum, móður, eiginkonu og barni. Þannig sé alls ekki útilokað að hann muni vera enn ákveðnari í að halda í kjarnorkuáætlun landsins og smíða kjarnavopn. Þá megi hugsa sér að Íranir muni duga að smíða „grófar“ sprengjur á borð við þær sem Bandaríkjamenn vörpuðu á Japan, í stað þess að freista þess að eignast odda á eldflaugar, og koma þeim í hendur samtaka á borð við Hezbollah. Annar möguleiki sé að þeir muni smíða nokkrar sprengjur, gera tilraunir til að sýna mátt þeirra og freista þess að fæla þannig Bandaríkjamenn og Ísraela frá frekari árásum.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Hernaður Kjarnorka Kjarnorkuvopn Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira