Forseti Kúbu segir viðræður við Trump-liða eiga sér stað Samúel Karl Ólason skrifar 13. mars 2026 14:51 Miguel Diaz-Canel, forseti Kúbu, er í erfiðri stöðu þessa dagana. AP/Eraldo Peres Forseti Kúbu segir ríkisstjórn landsins eiga í viðræðum við ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum. Þessum viðræðum sé ætlað að bæta samskipti ríkjanna og finna lausnir á því hvernig þau geti unnið saman. Bandaríkjamenn hafa komið í veg fyrir olíuflutninga til Kúbu og hefur verulega slæmt efnahagsástand þar versnað til muna.
Miguel Diaz-Canel birti ávarp í dag þar sem hann segist vonast til þess að viðræðurnar myndu hjálpa við að koma í veg fyrir möguleg átök. AP fréttaveitan hefur eftir forsetanum að engar eldsneytissendingar hafi borist til Kúbu í þrjá mánuði. Það væri vegna þess að Bandaríkjamenn kæmu í veg fyrir það og sagði Diaz-Canel að loka hefði þurft tveimur orkuverum vegna eldsneytisskorts. Rafmagnsleysi hefur verið mjög algengt á Kúbu. Diaz-Canel sagði það hafa komið verulega niður á þjóðinni þar sem rafmagnsleysið hefði haft áhrif á samskipti, samgöngur og kennslu. Þá hefði þurft að fresta tugum þúsunda skurðaðgerða vegna rafmagnsleysis. „Áhrifin eru gífurleg,“ sagði Diaz-Canel. Þá sagði hann að verið væri að fjölga sólarsellum en það myndi ekki duga til. Kúba þyrfti meiri olíu. „Vinaleg yfirtaka“ í vændum? Kúba hafði fengið olíu frá Venesúela en Donald Trump fékk yfirvöld þar til að hætta þeim sendingum, eftir að bandarískir hermenn numu Nicolás Maduro, fyrrverandi forseta, á brott og Bandaríkjamenn settu Venesúela í herkví. Þá þrýsti Trump einnig á yfirvöld í Mexíkó og fékk forseta landsins til að stöðva olíusendingar þaðan til Kúbu. Orkukerfi Kúbu er þar að auki verulega úr sér gengið. Yfirvöld þar hafa bent á að orkuverin séu mörg orðin gömul og hafi ekki fengið mikið viðhald vegna mikils kostnaðar. Þá hefur það reynst yfirvöldum á Kúbu erfitt að kaupa ýmsa varahluti og annan búnað vegna viðskiptaþvingana Bandaríkjanna. Trump hefur sagt á undanförnum dögum að ríkisstjórn Kúbu sé að falli komin. Hann hefur einnig sagt að ráðamenn þar vilji ólmir gera samkomulag við Bandaríkin. Í frétt Reuters er bent á að á mánudaginn sagði Trump að Kúba gæti gengið gegnum „vinalega yfirtöku“ en strax í kjölfarið bætti hann við að yfirtakan þyrfti ekki endilega að vera vinaleg.
Kúba Bandaríkin Donald Trump Bensín og olía Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira