Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Agnar Már Másson skrifar 14. mars 2026 08:32 Marco Rubio tekst ekki að fylla í skóparið sem Trump gaf honum. Getty Donald Trump Bandaríkjaforseta er mikið í mun að karlmenn í ríkisstjórn sinni klæðist ákveðnu skómerki sem er í miklu uppáhaldi hjá forsetanum. Svo annt er honum um skótískuna í Hvíta húsinu að menn eru farnir að óttast að láta sjást í öðru, jafnvel þegar skórnir passa ekki einu sinni. „
Marco, J.D., þið eruð í skítaskóm,“ sagði Trump er hann sat fund með varaforsetanum og utanríkisráðherranum. Trump tók síðan upp vörulista og spurði mennina út í skóstærðir; J.D. Vance varaforseti svaraði 13 og Marco Rubio utanríkisráðherra svaraði 11,5. Forsetinn hallaði sér svo aftur í sætinu og sagði: „Skóstærð segir margt um manninn.“ Þeir fengu svo nýja skó að gjöf í desember. Bandaríska stórblaðið Wall Street Journal (WSJ) rifjar upp þessi orðaskipti, sem J.D. Vance sagði reyndar sjálfur frá í ávarpi í desember. Forsetinn hefur nýlega kolfallið fyrir ákveðnu skómerki, og hann vill helst að allir karlmenn í hans innsta hring klæðist því. Hann hefur ítrekað gefið kollegum sínum eins skópar að gjöf. Nýir skór forsetans „Allir strákarnir eiga svona [skó],“ er haft eftir konu sem starfar í Hvíta húsinu. Önnur starfskona mun hafa sagt í gríni: „Þetta er bráðfyndið af því að allir eru hræddir við að vera ekki í þeim.“ Í gegnum tíðina hefur Trump gjarnan látið kenna sig við lúxus og glamúr, en sagt er frá því í WSJ að seint í fyrra hafi Trump hafið leit að nýju þægilegu skópari, og lent á bandaríska skóframleiðandanum Florsheim. Þessi mynd af Marco Rubio hefur vakið athygli síðustu daga þar eftir að upp komst um ástríðu Trumps fyrir skómerkinu. Getty Florsheim á sér langa sögu en framleiðandinn leggur áherslu á að blanda þægindum og stíl. Merkið er samt alls ekki af sama kalíberi og rándýru Brioni-jakkafötin eða síðu, rauðu (og nýlega fjólubláu) silkibindin sem Trump klæðist yfirleitt. Heldur kosta skórnir ekki nema um 145 Bandaríkjadali (um 18 þús. kr.) sem má teljast ódýrt fyrir spariskó í dag, hvað þá þegar maður er forseti. Þurfti að leggja Louis á hilluna En Trump líkaði svo vel við skóna að hann fór að deila þeim út á eigin kostnað. WSJ segir frá því að forsetinn geti nú orðið svo upptekinn af skófatnaði samstarfsmanna sinna að ríkisstjórnarfundir og hádegisverðir í Hvíta húsinu geti afar fljótlega snúist upp í umræður um skó. Trump sér til þess að kollegar sínir séu í þægilegum skóm. Hér má sjá Donald Trump í Davos ásamt Marco Rubio, Scott Bessent, Howard Lutnick, Chris Wright og Steve Witkoff.Getty Þar eru ekki aðeins Vance og Rubio sem eiga slíkt par, heldur einnig Sean Duffy samgönguráðherra, Pete Hegseth stríðsráðherra, Howard Lutnick viðskiptaráðherra, Steven Cheung samskiptastjóri, James Blair varastarfsmannastjóri og Ross Worthington ræðuhöfundur. Þá er sagt að Sean Hannity fréttamaður á Fox eigi einnig slíkt skópar, sem og þingmaðurinn Lindsey Graham. Svo er hermt að ríkisstjórnarliðar séu missáttir við skóvalið en óttist að láta sjást í öðrum skóm í kringum yfirmann sinn. Einn ráðherra kvartaði undan því að hafa þurft að leggja Louis Vuitton-skóna á hilluna til þess að ganga í augun á forsetanum, samkvæmt heimildarmönnum WSJ. Giskar á skóstærð Enn fremur er hermt að Trump hafi tekið upp á því að geta til um skóstærð manna fyrir framan þá. Hann biðji svo aðstoðarmann um að leggja inn pöntun og viku síðar berist skókassi að dyrum Hvíta hússins. Sú meinta tilhneiging forsetans að giska á skóstærð manna áður en hann kaupir handa þeim skó – og að ráðherrar neyði sig til þess að klæðast þeim – kann að skýra hvers vegna Marco Rubio utanríkisráðherra hefur nú ítrekað sést í of stórum skóm á opinberum vettvangi. hmm pic.twitter.com/BU5xvGoAA0— derek guy (@dieworkwear) March 11, 2026 Mynd frá því í janúar hefur vakið athygli þessa vikuna þar sem sjá má glögglega að Rubio klæðist Florsheim-dressskóm sem virðast hið minnsta einu númeri of stórir. Vissulega er þetta ekki í fyrsta sinn sem skóval Rubio vekur athygli en þegar hann sóttist sjálfur eftir því að vera forsetaembætti Repúblikana árið 2016 sást hann ganga um götur í stígvélum með hæl og mótframbjóðendur hans, Donald Trump þar á meðal, hnýttu í hann fyrir vikið. Þau stígvél voru einmitt frá sama merki. „Ég hef gaman af þessu“ Bandaríkjaforsetinn tjáði sig loksins um stóra skómálið í viðtali á Fox í gær, þar sem hann vissulega neitaði því að hann skipaði ráðherrum í ríkisstjórninni hvernig þeir ættu að klæða sig, en sagðist þó vilja ekki sjá þá í strigaskóm. „Nei, en þetta er góður skór,“ bætti Trump við. „Það sem ég geri er, sem einhver sem hefur í mörg ár gengið í skóm sem voru ekki góðir og ekkert sérstaklega þægilegir, þannig að ég hef gaman af þessu,“ sagði hann í viðtali sem birtist á Fox í gær. „Þetta virðist virka. Nú líta þeir allir smart og flottir út.“
Tíska og hönnun Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira