Linda skoraði annan leikinn í röð Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. mars 2026 14:00 Linda Líf Boama var ekki lengi að stimpla sig inn hjá Kristianstad. kristianstad Kristianstad hafði betur gegn Malmö á útivelli, 1-3, í sænsku bikarkeppninni í fótbolta í dag. Linda Líf Boama kom Kristianstad á bragðið í leiknum.
Nik Chamberlain, fyrrverandi þjálfari Þróttar og Breiðabliks, tók við Kristianstad í vetur. Meðal þeirra leikmanna sem hann fékk til sænska liðsins var Linda en hún kom frá Víkingi. Linda var í byrjunarliði Kristianstad gegn Malmö í dag og á 16. mínútu kom hún liðinu í 0-1. Það reyndist eina mark fyrri hálfleiks. Linda skoraði einnig í 3-2 sigri Kristianstad á Piteå í síðasta mánuði og hefur skorað tvö mörk í fyrstu þremur leikjum sínum með nýja liðinu. Hanna Ekengren kom Kristianstad í 0-2 á 54. mínútu en sex mínútum fyrir leikslok minnkaði Malmö muninn. Michelle De Jongh gulltryggði hins vegar sigur gestanna með marki á lokamínútunni. Þrír íslenskir leikmenn voru í byrjunarliði Kristianstad í dag en auk Lindu byrjuðu þær Alexandra Jóhannsdóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir. Kristianstad tryggði sér toppsætið í riðli 3 í bikarkeppninni með sigrinum í dag. Liðið fékk sjö stig af níu mögulegum í riðlinum og er komið í undanúrslit bikarkeppninnar. Kristianstad hefur aldrei orðið bikarmeistari en komst í bikarúrslit 2014 og 2019 þegar Elísabet Gunnarsdóttir þjálfaði liðið.
Sænski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira