Holtavörðuheiðin opin á ný Lovísa Arnardóttir skrifar 16. mars 2026 07:22 Lokað er um Holtavörðuheiði en unnið að mokstri. Vísir/Atli Búið er að opna Holtavörðuheiðina eftir lokun í nótt. Enn er ófært um Fróðaárheiði. Hálka og snjóþekja er á flestum leiðum.
Óvissustig er vegna snjóflóðahættu víða á Norðurlandi og á norðanverðum Vestfjörðum. Víða er ófært eða vegir lokaðir vegna óveðurs sem gekk yfir landið í gær en samkvæmt upplýsingasíðu Vegagerðarinnar er nú unnið að mokstri. Þá er óvissustig í gildi á Súðavíkurhlíð. Siglufjarðarvegur og Ólafsfjarðarmúli eru báðir lokaðir. Þá eru landvegur lokaður vegna vatnavaxta á milli gatnamóta við Ísakot og Þjórsárdalsveg. Hjáleið er hjá Ísakoti. Fram kemur á vef Vegagerðarinnar að víða er hálka, hálkublettir eða þæfingsfærð. Fjöldahjálparmiðstöðvar voru opnaðar beggja vegna lokunarpóstanna við Holtavörðuheiði og beindi lögreglan því til fólks að allir skyldu halda sig heima vegna veðursins. Fjöldahjálparstöðvarnar voru annarsvegar í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi og hinsvegar í Reykjaskóla í Hrútafirði. Pétur Björnsson yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðulandi vestra sagði í samtali við Fréttastofu í gærkvöldi að um 200 manns hafi leitað skjóls á Blönduósi og um 70 að minnsta kosti í Reykjaskóla. Gular viðvaranir ekki lengur í gildi Gular veðurviðvaranir sem hafa verið í gildi á norðvesturhorni landsins féllu úr gildi um klukkan ellefu í gærkvöldi en veðurstofan spáir þó hríðarveðri áfram á norðvestanverðu landinu í dag. Á Norðurlandi og á norðanverðum Vestfjörðum er enn óvissustig í gildi vegna snjóflóðahættu og á Ísafirði er hættustig í gildi eins og er. Nokkuð stórt flóð fór á varnargarðinn Stóra-Bola ofan Siglufjarðar í gærdag. Uppfært 8.41: Holtavörðuheiði er opin. Hálka og snjóþekja er á flestum leiðum samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar.
Færð á vegum Veður Dalabyggð Húnaþing vestra Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Skilningur opnar ekki höfnina“ Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Erlent Fleiri fréttir Útlit fyrir kalda norðanátt fram eftir viku Áframhaldandi norðanátt og stöku él Gengur í suðvestan stinningskalda með stöku skúrum eða éljum Bjart og fallegt verkalýðsdagsveður Suðvestanátt með skúrum og slydduéljum Skúrir og slydduél en léttskýjað á Norður- og Austurlandi Súld eða rigning og milt veður Allhvöss sunnanátt með rigningu Enn má búast við slyddu eða snjókomu Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Bakslag í vorkomu: Snjóföl og hálka í næstu viku Smávegis væta norðantil en bjart sunnantil Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Víða bjartviðri en líkur á þokulofti vestantil Milt veður ríkjandi og hiti að átján stigum Hið rólegasta veður og hiti að fjórtán stigum Veðrið stjórnast af lægð á Grænlandshafi Hitinn nær upp í tíu stig Rólegheitaveður og smá skúrir Víða skúrir en hiti gæti skriðið yfir tólf stig Norðaustan strekkingur og rigning Hæg austlæg átt en skilabakki nálgast Smálægðir á sveimi og hvessir á morgun Hviður þvert á Vesturlandsveg á Kjalarnesi Oftar en ekki viðvörun í gildi í mars Má búast við mikilli úrkomu á Austfjörðum Útlit fyrir vorveður á næstu dögum Minnkandi vindur og stöku él Víða skúrir og hvessir eftir hádegi Allhvass vindur og rigning Sjá meira