,,Þetta krem bjargaði húðinni á barninu okkar‘‘ Artasan 23. mars 2026 08:33 Sigurveig Dagbjartsdóttir og sonur hennar Ari Þór en hann hefur verið að glíma við mikið ofnæmi frá unga aldri. Sigurveig segir hér frá kremi sem hefur hjálpað mikið. Sigurveig Dagbjartsdóttir hefur mikla reynslu af allskyns ofnæmi en sonur hennar, Ari Þór sem er 6 ára hefur verið að glíma við mikið ofnæmi frá unga aldri. Sigurveig segir okkur hér hvernig einkenni Ara Þórs gera vart við sig og hvernig hún fann góða og áhrifaríka leið til þess að halda einkennum í skefjum með tilheyrandi bættri líðan drengsins. ,,
Yngsta barnið mitt er með mikið allskyns ofnæmi en hann er m.a. með ofnæmi fyrir mjólk, eggjum, sólblómaafurðum, fiski og bönunum og gerðu einkenni vart við sig þegar hann var mjög ungur. Hans helstu einkenni eru mikil útbrot um allan líkama sem hefur mikil áhrif á daglegt líf þar sem hann finnur fyrir miklum kláða og óþægindum. Hann er einnig ótrúlega næmur fyrir ofnæmisvöldum sem gerir það að verkum að það er ekki hægt að elda fisk eða neitt sem inniheldur egg nálægt honum ásamt því að hann fær útbrot ef einhver hefur borðað eða snert egg, fisk eða sólblómaafurðir og snertir hann svo. Hann fær því mjög oft ofnæmisútbrot sem erfitt var að halda niðri án þess að nota sterakrem daglega sem okkur foreldrum var farið að líða ansi illa yfir,‘‘ segir Sigurveig sem átti erfitt með að sætta sig við daglega notkun sterakrems á ungan son sinn. Pínulítill farinn að biðja sjálfur um krem ,,Sonur minn er með virkilega viðkvæma húð og hefur ekki þolað neinar sápur eða krem í gegnum tíðina svo að við þurfum að fara varlega þegar kemur að slíku. Í gegnum tíðina höfum við prófað allskyns tegundir af kremum en þetta eina krem, Bio Skin Junior Outbreak Rescue, er það sem virkar lang best að okkar mati. Bio Skin Junior Outbreak Rescue hefur verið margverðlaunað á síðustu árum fyrir einstaka virkni Það er kláða stillandi, rakagefandi og nærandi og minnkar því útbrotin. Ari Þór var bara pínulítill farinn að biðja sjálfur um þetta krem því hann fann hvað honum leið mun betur að nota það þegar hann fékk ofnæmiskast. Okkur líður líka betur að geta notað þetta krem á hverjum degi í stað stera sem þynna húðina og eru ekki ætlaðir til langtíma notkunar. Ég mæli með þessu kremi fyrir öll þau sem eru í einhvers konar húðvandræðum og vil helst að sem flestir prófi þetta krem áður en farið er í sterakremin. Það má með sanni segja að þetta krem hafi bjargað húðinni á barninu okkar og við foreldrarnir erum himinlifandi,‘‘ segir Sigurveig. Kláða stillandi, rakagefandi og nærandi Bio Skin Junior Outbreak Rescue hefur verið margverðlaunað á síðustu árum fyrir einstaka virkni sína en kremið er hannað fyrir börn með mjög þurra húð sem þarfnast raka og næringu. Kremið róar, nærir og dregur úr kláða og er sérstaklega hannað til þess að styðja við húðina með því að veita henni þau vítamín og steinefni sem þörf er á. Kremið inniheldur 10 mismunandi náttúrlegar olíur og extrakta eins og Zeolite, lavender og jojoba olíu sem hefur margskonar góð áhrif á húðina. Kremið er sérstaklega prófað af húðsjúkdómalæknum og hentar vel fyrir börn með exem, dermatitis eða önnur húðvandamál. Bio Skin Junior Outbreak Rescue: Er ríkt af vítamínum og steinefnum Róar og nærir húðina Dregur úr kláða, þurrki og pirring Afeitrar húðina frá ofnæmisvökum Bindur raka í húðinni Bio Skin Junior Outbreak Rescue má nota eins oft og þörf er á en mælt er með að bera það 3 -4 sinnum á dag til að byrja með þangað til einkenni minnka. Kremið fæst í helstu apótekum landsins, Krónunni, Hagkaup, Nettó og á Velveru.
Heilsa Mest lesið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Greindu frá dánarmeini Tim Curry Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Gloria Steinem er látin Lífið Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Lífið Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Lífið Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Lífið Fleiri fréttir Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira