Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Sindri Sverrisson skrifar 17. mars 2026 09:30 Kasper Högh hefur blómstrað í Meistaradeild Evrópu í vetur, sérstaklega á seinni stigum. Getty/Martin Ole Wold Ævintýri norska fótboltaliðsins Bodö/Glimt gæti haldið áfram í kvöld þegar liðið mætir Sporting Lissabon í seinni leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Leikmenn félagsins hafa snarhækkað í verði í vetur og þar á meðal fyrrverandi leikmaður Vals.
Bodö/Glimt er í kjörstöðu eftir fyrri leikinn gegn Sporting sem liðið vann 3-0. Nú mætast liðin hins vegar í Portúgal og ljóst að heimamenn munu leggja allt í sölurnar til að stöðva smáliðið sem nú þegar hefur komið öllum á óvart með frammistöðu sinni. Sigurliðið mætir svo Arsenal eða Leverkusen í 8-liða úrslitum. Vefsíðan Transfermarkt sérhæfir sig í að verðmeta knattspyrnumenn og í grein miðilsins segir að tveir leikmenn Bodö/Glimt hafi hækkað sérstaklega í verði. Hafa snarhækkað í verði Annar er kantmaðurinn Jens Petter Hauge en þessi 26 ára norski landsliðsmaður hefur hækkað um 7,5 milljónir evra og er metinn á 12 milljónir evra, eða 1,7 milljarð íslenskra króna. Sami verðmiði, eða 12 milljónir evra, er núna settur á danska framherjann Kasper Högh sem hækkað hefur um 4 milljónir evra í verði. Högh, sem er 25 ára, hefur skorað fimm mörk í Meistaradeildinni í vetur og svo sannarlega slegið í gegn. Hann hefur líklega náð mun lengra en menn bjuggust við þegar hann spilaði sem lánsmaður með Val, fimm leiki, Covid-tímabilið 2020. Högh, sem var þá 19 ára, skoraði ekki í þessum leikjum með Val en á Íslandsmeistaratitil í sínu safni því Valsmenn voru krýndir meistarar eftir að mótið hafði verið blásið af vegna kórónuveirufaraldursins. Hann gaf eina stoðsendingu en var aldrei í byrjunarliðinu enda Patrick Pedersen aðalframherji Vals. Þó að Högh, Hauge og fleiri hafi hækkað í verði þá er leikmannahópur Bodö/Glimt samt átta sinnum ódýrari en hópurinn hjá Sporting, samkvæmt Transfermarkt, þar sem hópur norska liðsins er metinn á 57 milljónir evra en Sporting á 464 milljónir evra. Seinni leikur liðanna er á Sýn Sport Viaplay í kvöld klukkan 17:45.
Norski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Sjá meira