Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Valur Páll Eiríksson skrifar 17. mars 2026 11:02 Óvissa ríkir um þátttöku Írans á HM. Mohammad Karamali/vi/DeFodi Images via Getty Images Enn ríkir óvissa um þátttöku landsliðs Írans á HM karla í fótbolta í sumar. Knattspyrnusamband landsins á í viðræðum við yfirvöld í Mexíkó um að spila leiki liðsins þar, fremur en í Bandaríkjunum.
Þátttaka Írans er í uppnámi sökum árása Bandaríkjanna og Ísrael á ríkið og misvísandi upplýsingar verið að fá um stöðuna síðustu vikur. Gianni Infantino, forseti FIFA, fullvissaði alþjóð um að þátttaka liðsins væri ekki í hættu eftir fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta í síðustu viku. Íranar væru meira en velkomnir til Bandaríkjanna. Tveimur dögum síðar sagði Trump þátttöku liðsins hins vegar í hættu. Hann gæti ekki tryggt öryggi landsliðsmanna Írans, kæmi liðið til Bandaríkjanna. Íran er í G-riðli mótsins og á að spila alla þrjá leiki sína í Bandaríkjunum. Þá fyrstu tvo við Nýja-Sjáland og Belgíu í Inglewood í Kaliforníu dagana 15. og 21. júní og þann þriðja gegn Egyptum í Seattle 26. júní. Landsliðsmenn Íran sendu frá sér yfirlýsingu fyrir helgi þar sem þeir sögðu engan getað bannað sér að taka þátt á móti sem liðið hefði unnið sér inn keppnisrétt á. Áður hafði verið haft eftir íþróttamálaráðherra landsins að Íran hygðist ekki senda lið til leiks sökum þess að ein gestgjafaþjóðanna hefði myrt þjóðarleiðtogann Ayatollah Khamenei. Samkvæmt færslu frá sendiráði Írans í Mexíkó á samfélagsmiðlinum X standa nú yfir viðræður við FIFA um að færa leiki Írans frá Bandaríkjunum til Mexíkó. Haft er eftir Mehdi Taj, forseta íranska knattspyrnusambandsins, að þær viðræður standi yfir. 🔹مهدی تاج رئیس فدراسیون فوتبال ایران: وقتی ترامپ صراحتأ اعلام کرده است که نمیتواند امنیت تیم ملی ایران را تأمین کند، قطعا به آمریکا سفر نمیکنیم/در حال مذاکره با فیفا هستیم تا مسابقات ایران در جام جهانی، در کشور مکزیک برگزار شود— Embajada de Irán en México (@IraninMexico) March 16, 2026 Verði leikirnir færðir liggur fyrir að það hafi mikil áhrif á skipulag mótsins og ekki síst andstæðinga Írans, sem hafa eflaust bókað ferðalög og gistingu í samræmi við fyrri áætlanir. Auk breytinga á plönum Írana þurfi því Nýsjálendingar, Belgar og Egyptar að breyta sínum tilhögunum og færa sig frá Bandaríkjunum til Mexíkó til að geta mætt Íran. Gangi það upp að Íran mæti til leiks getur liðið mætt Bandaríkjunum á HM. Lendi liðin tvö í öðru sæti riðla sinna dragast þau saman í 32-liða úrslitum og sá leikur færi þá fram í Bandaríkjunum - sé það yfirhöfuð hægt að Íranar spili þar í landi. Töluverður vandi blasir við FIFA sökum stöðunnar en Infantino segir mótið og fótboltann eiga að verka sem sameiningarafl heimsins í sumar.
HM 2026 í fótbolta Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Mexíkó Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Enski boltinn Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Fleiri fréttir 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Sjá meira