Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Smári Jökull Jónsson skrifar 17. mars 2026 11:52 Óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum. Vísir/Einar Rýma þurfti atvinnuhúsnæði á Ísafirði eftir að snjóflóð féll í Seljalandshlíð í morgun. Áfram er í gildi óvissustig vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi og þá eru gular viðvaranir í gildi vegna veðurs á Vestanverðu landinu.
Gul viðvörun hefur verið í gildi síðan í nótt á sunnanverðu Snæfellsnesi vegna norðaustan storms. Þá er viðvörun einnig í gildi á Vestfjörðum vegna norðvestan storms en honum fylgir snjókoma með tilheyrandi éljagangi eða skafrenningi. Búið er að opna veginn um Súðavíkurhlíð en þar er þó enn snjóflóðahætta. Ótrúlegt langlundargerð íbúa Sveitarstjóri Súðavíkurhrepps segir ekta vetrarveður fyrir vestan og lokun vegarins til Ísafjarðar óþægilega fyrir fólk sem ferðast þarf á milli vegna vinnu. „Svo hefur það komið fyrir að fólk er kannski rétt komið til vinnu þegar það verður að skjótast aftur til baka. Þannig að það eru svona helstu óþægindin, auðvitað fyrir utan hættuna af þessu. Þetta er náttúrulega ekki þannig hérna að það séu allir algjörlega í rónni yfir þessu, en samt sem áður er ótrúlega mikið langlundargeð,“ sagði Bragi Thoroddsen sveitarstjóri í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Það kosti töluvert skipulag þegar íbúar eru að skipuleggja ferðir sínar á morgnanna. „Það eru mörg símtöl hérna oft að morgni þar sem að maður er að reyna að fara yfir vef Vegagerðarinnar og fylgjast með því hvort það séu einhverjar tilkynningar. Þetta er bara partur af lífinu hérna, þetta er náttúrulega galið.“ Þá sé það staðalbúnaður íbúa að vera með frystikistu með nóg af mat ef rof verður á þjónustu vegna lokunar vega. „Það er örstutt hérna á milli þessara þéttbýlisstaða, höfuðstað Vestfjarða sem er nú Ísafjarðabær og þar er meginþorri allrar þjónustu. Það er kannski svolítið sérstakt að þetta er láglendisvegur og þetta eru einhverjir 20 kílómetrar hérna milli þorpanna. Að þetta skuli vera jafn erfitt að vetri að fara hérna á milli og jafnvel að sumarlagi þegar að grjót hrynur niður.“ Rýmt á Ísafirði og veður versnar fyrir norðan Sveinn Brynjólfsson á snjóflóðavakt Veðurstofunnar segir óvissustig enn í gildi á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi. „Rétt áðan var að falla snjóflóð í Seljalandshlíðinni á Ísafirði. Þannig að nú er búið að rýma aftur þetta atvinnuhúsnæði sem var rýmt á sunnudag, það var búið að aflétta því í gær.“ Búist er við að rýmingin verði í gildi þar til á morgun. Viðvörun vegna snjóflóðahættu er á Flateyrarvegi og vegum um Súðavíkurhlíð og Eyrarhlíð fyrir vestan sem og Siglufjarðarvegi, Ólafsfjarðarvegi og veginum um Dalsmynni á Norðurlandi. „Það er ennþá svolítil snjókoma og skafrenningur til fjalla og verður það í dag virðist vera samkvæmt spám fyrir vestan. En á Norðurlandi ætti að draga svolítið úr því í dag en að versna aftur í kvöld.“ „Í morgun þá sáust þrjú svona dálítið stór snjóflóð í Ólafsfirði sem ógnuðu ekki byggð eða vegum. Ef við lítum aftur til miðvikudagskvölds þá hefur fallið mjög mikið af flóðum á Vestfjörðum og Norðurlandi. Yst á Tröllaskaganum hefur snjóað langmest.“ Þá segir hann að skoða þurfi stöðuna fyrir vestan annað kvöld þegar vindáttin breytist. „Það gæti orðið ágætis veður á morgun og þá dregur úr snjóflóðahættunni. En síðan þegar suðvestanáttin kemur annað kvöld og aðfaranótt fimmtudags þá þurfum við að horfa á þetta öðrum augum þegar leysingin verður. Rigning, hiti og hvassvirði. Þá geta farið snjóflóð líka,“ sagði Sveinn að endingu.
Veður Ísafjarðarbær Snjóflóð á Íslandi Fjallabyggð Súðavíkurhreppur Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Fleiri fréttir Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Sjá meira