Ráðherra og þingforseti segja sig úr flokknum Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. mars 2026 18:33 Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra í landsstjórninni og Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra Danmerkur. Getty Vivian Motzfeldt utanríkisráðherra og Kim Kielsen þingforseti Grænlands hafa sagt sig úr flokki sínum Siumut í mótmælaskyni eftir að formaður flokksins ákvað að ganga úr ríkisstjórnarsamstarfinu.
Stjórn flokksins með Alequ Hammond í broddi fylkingar sagði skilið við ríkisstjórnarsamstarfið nokkuð óvænt síðastliðinn föstudag og formaðurinn kvað það vera vegna þess hvað flokksstjórnin var ósátt með að tveir þingmenn Demokraatit, flokks landsstjórnarformannsins, gæfu kost á sér til Danaþings. Grænlendingar kjósa tvo fulltrúa á danska þing. Án samráðs við sig Siumut hefur frá kosningum síðasta vor sinnt utanríkismálum og einnig þingforsæti en Kim Kielsen hefur verið forseti grænlenska þingsins frá því að ríkisstjórn var mynduð. Í samtali við Sermitsiaq segir Motzfeldt að hún líti svo á að stjórn flokksins telji hvorki þörf á sér né embætti þingforseta lengur. „Þetta var gert án þess að hafa viðkomandi aðila með í ráðum og án þess að ræða við okkur sem vinnum við þetta.“ „Enginn tilgangur“ Hún segir Siumut einangra sig og útiloka sig frá áhrifum. „Ég starfa í stjórnmálum til að vinna að áhrifum og gefa af mér til samfélagsins. Ég sé engan tilgang í því að halda áfram á þessari braut,“ segir hún. Kim Kielsen þingforseti tekur undir með flokkssystur sinni. „Ég er algjörlega sammála Vivian Motzfeldt um að ákvörðunin um að Siumut gengi úr stjórnarsamstarfinu síðastliðinn föstudag hafi verið röng og byggð á óskiljanlegum og ófullnægjandi forsendum,“ hefur KNR eftir honum.
Grænland Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira