Lög að leysa leikskólavandann? Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar 19. mars 2026 09:03 Í Silfrinu síðastliðinn þriðjudag nefndi Pétur oddviti Samfylkingarinnar að lögbinding leikskólastigsins væri möguleg lausn á leikskólavandanum í borginni. Ekki ný og ekki svo galin pæling enda leikskólastigið lögverndað víða í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Málið er að vandinn er ekki skortur á lögum. Vandinn er skortur á fólki. Við þurfum ekki að velta þessu lengi fyrir okkur. Nú þegar er í lögum kveðið á um að tveir þriðju starfsfólks í leikskólum skuli vera fagmenntaðir kennarar. Raunin? Aðeins um fjórðungur starfsfólks uppfyllir þá kröfu. Lögin eru til staðar, en þau eru ekki að virka. Það er því fráleitt að halda að fleiri lagagreinar muni skyndilega leysa mönnunarvanda sem hefur byggst upp árum saman. Lög skapa ekki starfsfólk. Þau búa ekki til betri starfskjör, lækka álag eða gera starfið eftirsóknarverðara. Ef eitthvað er, þá getur lögbinding án raunverulegra aðgerða gert stöðuna verri. Hún hækkar væntingar, eykur þrýsting á kerfi sem þegar ræður illa við verkefnið og skilur eftir starfsfólk í enn erfiðari stöðu. Raunveruleg lausn er fjölþættari. Hún felst í því að bæta kjör, laga starfsumhverfi og gera leikskólastarfið að raunhæfum valkosti fyrir menntað fólk og fólk sem brennur fyrir því að starfa með börnum. Borgin þarf að beina fjármagninu meira í skólana sjálfa og minna í yfirbygginguna. Hlusta þarf á ákall þess fólks sem starfar á gólfinu. Án þeirra eru engir skólar og engin þjónusta. Heldur aðeins áframhaldandi umræða um vanda leikskólanna kosningar eftir kosningar. Lögbinding leikskólastigsins er ekki lausn. Hún er í besta falli yfirborðkennd aðgerð og í versta falli leið til að lögfesta vandann í stað þess að leysa hann. Höfundur er foreldrafræðingur og uppeldisráðgjafi og frambjóðandi fyrir Miðflokkinn í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Sjá meira
Í Silfrinu síðastliðinn þriðjudag nefndi Pétur oddviti Samfylkingarinnar að lögbinding leikskólastigsins væri möguleg lausn á leikskólavandanum í borginni. Ekki ný og ekki svo galin pæling enda leikskólastigið lögverndað víða í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Málið er að vandinn er ekki skortur á lögum. Vandinn er skortur á fólki. Við þurfum ekki að velta þessu lengi fyrir okkur. Nú þegar er í lögum kveðið á um að tveir þriðju starfsfólks í leikskólum skuli vera fagmenntaðir kennarar. Raunin? Aðeins um fjórðungur starfsfólks uppfyllir þá kröfu. Lögin eru til staðar, en þau eru ekki að virka. Það er því fráleitt að halda að fleiri lagagreinar muni skyndilega leysa mönnunarvanda sem hefur byggst upp árum saman. Lög skapa ekki starfsfólk. Þau búa ekki til betri starfskjör, lækka álag eða gera starfið eftirsóknarverðara. Ef eitthvað er, þá getur lögbinding án raunverulegra aðgerða gert stöðuna verri. Hún hækkar væntingar, eykur þrýsting á kerfi sem þegar ræður illa við verkefnið og skilur eftir starfsfólk í enn erfiðari stöðu. Raunveruleg lausn er fjölþættari. Hún felst í því að bæta kjör, laga starfsumhverfi og gera leikskólastarfið að raunhæfum valkosti fyrir menntað fólk og fólk sem brennur fyrir því að starfa með börnum. Borgin þarf að beina fjármagninu meira í skólana sjálfa og minna í yfirbygginguna. Hlusta þarf á ákall þess fólks sem starfar á gólfinu. Án þeirra eru engir skólar og engin þjónusta. Heldur aðeins áframhaldandi umræða um vanda leikskólanna kosningar eftir kosningar. Lögbinding leikskólastigsins er ekki lausn. Hún er í besta falli yfirborðkennd aðgerð og í versta falli leið til að lögfesta vandann í stað þess að leysa hann. Höfundur er foreldrafræðingur og uppeldisráðgjafi og frambjóðandi fyrir Miðflokkinn í Reykjavík.