„Mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál“ Smári Jökull Jónsson skrifar 19. mars 2026 12:10 Veðrið gæti haft áhrif á færð á vegum, sérstaklega fjallvegum. Vísir/Vilhelm Gular viðvaranir verða í gildi á öllu sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og búast má við truflunum á samgöngum. Öllu innanlandsflugi Icelandair hefur verið aflýst í dag og farþegum sem eiga flug eiga til og frá Evrópu í fyrramálið verið boðið að færa sig í önnur flug.
Veðurkortið næstu tæpu tvo sólarhringana er skrautlegt og verða gular viðvarnir í öllum landshlutum á einhverjum tímapunkti. Viðvaranir eru í gildi á Vestfjörðum, öllu Norðurlandi og Austfjörðum þar til síðar í dag vegna sunnan og suðvestan storms og hláku. Óvissustig er enn í gildi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og Norðurlandi og hætt er við krapaflóðum, grjóthruni og aurskriðum á sunnanverðum Vestfjörðum sem gætu truflað umferð. Vont veður en býst ekki við foktjóni Í kvöld hvessir á ný og taka nýjar viðvaranir gildi á öllu vestan- og sunnanverðu landinu í kvöld, nótt og fyrramálið og er búist við suðvestan stormi með dimmum éljum sem og truflunum á samgöngum. „Sérstaklega á fjallvegum en þetta er samt bara vont veður og það verður mjög hvasst í éljahryggjunum. Þetta er bara mjög vont veður sem mun eflaust skapa vandamál, að minnsta kosti á fjallvegum,“ segir Birgir Örn Höskuldsson veðurfræðingur á Veðurstofunni í samtali við fréttastofu. „Það verður þessi hvassi éljagangur en þetta er ekki endilega þannig að við búmst við foktjóni sem slíku,“ bætir Birgir við. Innanlandsflugi aflýst og farþegum frá Evrópu boðið að færa flug Hann segir morgundaginn ekki góðan til ferðalaga en á ekki endilega von á ófærð á höfuðborgarsvæðinu þó hægt gæti á umferð. Viðvörun er í gildi á höfuðborgarsvæðinu allan morgundaginn. „Þetta fer eiginlega ekkert að skána að ráði fyrr en á laugardagsmorgun.“ Þá hefur Icelandair aflýst öllu innanlandsflugi í dag. Að sögn Ásdísar Pétursdóttur, forstöðumanns samskipta hjá Icelandair, var farþegum sem eiga flug erlendis í fyrramálið boðið að færa sig á önnur flug og tengifarþegar frá N-Ameríku færðir sömuleiðis sem fyrirbyggjandi aðgerð. Frekara mat á stöðunni verður framkvæmt í dag og hefðbundinn veðuraðgerðastjórnarfundur á dagskrá eftir hádegið sem fulltrúar Icelandair og Isavia sitja. Til slíkra funda er boðað þegar veður er slæmt að sögn Guðjóns Helgasonar, upplýsingafulltrúa Isavia.
Veður Icelandair Samgöngur Umferð Færð á vegum Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Fleiri fréttir Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sjá meira