Lykilfólk úr Vélfagi stofnar nýtt sjávarútvegstæknifyrirtæki Kjartan Kjartansson skrifar 19. mars 2026 14:41 Stjórn Masturs skipa Magnús Rúnar Guðmundsson, stjórnarformaður, (t.v.) ásamt Silfá Huld Bjarmadóttur (2.f.v.) og Gunnari Óla Sölvasyn (t.h.)i. Elvar Stefánsson (2. f.h.) er framkvæmdastjóri félagsins. MASTUR Tveir af stjórnendum norðlenska sjávarútvegstæknifyrirtækisins Vélfags hafa stofnað nýtt fyrirtæki sem býður upp á sambærilega þjónustu. Annar þeirra segir nýja fyrirtækið ekki byggja á grunni Vélfags.
Hjónin Silfá Huld Bjarmadóttir og Elvar Stefánsson voru bæði handtekin þegar embætti héraðssaksóknara gerði húsleit í húsnæði Vélfags á Norðurlandi í janúar. Rannsóknin er í tengslum við meint brot á þvingunaraðgerðum sem meirihlutaeigandi Vélfags sætir vegna ætlaðra tengsla við rússneskan ólígarka. Þau hafa nú stofnað Mastur, nýtt fyrirtæki sem sem sérhæfir sig í þjónustu, varahlutum og þróun búnaðar fyrir fiskvinnslu í samstarfi við hafnfirska fyrirtækið Micro, að því er kemur fram í tilkynningu sem Silfá Huld sendi fjölmiðlum í dag. Þar er starfsemi Masturs meðal annars sögð fela í sér þjónustu og viðhald á fiskvinnslubúnaði, sölu varahluta og áframhaldandi þróun lausna fyrir vinnslu. Fyrirtækið hafi þegar hafið starfsemi og lokið afhendingu á fyrstu pöntunum til viðskiptavina. Elvar er sagður framkvæmdastjóri Masturs. Magnús Rúnar Guðmundsson frá Málmtækni er stjórnarformaður Masturs og Gunnar Óli Sölvason, einn eigenda Micro, á einnig sæti í stjórn nýstofnaða félagsins. Silfá Huld og Elvar eiga saman helmings hlut í MSTR ehf. sem er með starfsemi á Einhellu í Hafnarfirði. Micro-ryðfrí smíði á helmingshlut á móti þeim. Steinn Árni Ásgeirsson og Sveinn Sigurðsson eiga stærstu hlutina í Micro. Í samtali við Vísi sagði Silfá Huld að Mastur byggði hvorki á tækjum né hugverki Vélfags. Framleiðsla þess færi fram með tækjabúnaði Micro í Hafnarfirði. Fékk einnig réttarstöðu sakbornings Alfreð Tulinius, stjórnarformaður Vélfags, fékk stöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara. Spurð að því hvort að hún hafi fengið sambærilega réttarstöðu vísaði Silfá Huld á Friðrik Smárason, lögmann sinn. Hann staðfestir að Silfá Huld hafi fengið réttarstöðu sakbornings í rannsókninni en að hún ætli ekki að tjá sig um hana á meðan hún stendur enn yfir. Silfá Huld er dóttir Bjarma Sigurgarðarssonar og Ólafar Ýrar Lárusdóttur sem stofnuðu Vélfag fyrir rúmum þrjátíu árum. Þau eru enn minnihlutaeigendur í Vélfagi en starfsemi þess hefur legið niðri frá því í fyrra eftir að Arion banki frysti reikninga þess. Ástæðan fyrir frystingunni var sú að Ivan Kaufmann, meirihlutaeigandi Vélfags, er talinn leppur fyrir rússneska útgerðarrisann Norebo sem keypti meirihluta hlutafjár í Vélfagi af stofnendunum á sínum tíma. Evrópusambandið bætti Norebo á þvingunarlista sinn vegna tilraun rússneskra stjórnvalda til þess að grafa undan stöðugleika í Evrópu í fyrra. Aðeins fjórum dögum fyrr keypti Kaufmann félag sem hélt utan um hluti Norebo í því sem Arion banki og íslensk stjórnvöld telja að hafi verið sýndarviðskipti. Kaufmann freistar þess nú að fá frystingu fjármuna Vélfags hnekkt fyrir Hæstarétti.
Viðskiptaþvinganir gegn Vélfagi Evrópusambandið Rússland Sjávarútvegur Öryggis- og varnarmál Tengdar fréttir Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Verkstæði tæknifyrirtækisins Vélfags á Ólafsfirði hefur verið selt með fyrirvara. Fasteignasali segir að samþykki bæði lánastofnunar og utanríkisráðuneytis þurfi áður en salan getur gengið í gegn. 24. febrúar 2026 13:56 Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Stjórnarformaður Vélfags segist ekki hafa beinar upplýsingar um að reynt hafi verið að stofna nýtt félag fyrir starfsemina eftir að fjármunir þess voru frystir. Hann hafi fjarlægt tölvur úr höfuðstöðvum fyrirtækisins að beiðni eigenda þess. Lögmaður Vélfags segir fréttir um slíkt „þvælu“. 29. janúar 2026 14:49 Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Lykilstjórnendur hjá Vélfagi hafa unnið að því að halda starfsemi gangandi í nýju félagi með því að kaupa búnað þess ódýrt. Þá hafa þeir fjarlægt tölvur úr húsnæði fyrirtækisins sem innihalda teikningar af vélum. Nokkrir starfs- og stjórnarmenn Vélfags voru handteknir í aðgerðum saksóknara í dag. 21. janúar 2026 15:45 Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara Héraðssaksóknari gerði húsleit í höfuðstöðvum Vélfags á Akureyri í morgun og var Alfreð Tulinius, stjórnarformaður félagsins, handtekinn í tengslum við þær. Vélfag sætir viðskiptaþvingunum vegna tengsla eiganda fyrirtækisins við rússneska skuggaflotann. 21. janúar 2026 12:31 Mest lesið Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira
Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Verkstæði tæknifyrirtækisins Vélfags á Ólafsfirði hefur verið selt með fyrirvara. Fasteignasali segir að samþykki bæði lánastofnunar og utanríkisráðuneytis þurfi áður en salan getur gengið í gegn. 24. febrúar 2026 13:56
Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Stjórnarformaður Vélfags segist ekki hafa beinar upplýsingar um að reynt hafi verið að stofna nýtt félag fyrir starfsemina eftir að fjármunir þess voru frystir. Hann hafi fjarlægt tölvur úr höfuðstöðvum fyrirtækisins að beiðni eigenda þess. Lögmaður Vélfags segir fréttir um slíkt „þvælu“. 29. janúar 2026 14:49
Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Lykilstjórnendur hjá Vélfagi hafa unnið að því að halda starfsemi gangandi í nýju félagi með því að kaupa búnað þess ódýrt. Þá hafa þeir fjarlægt tölvur úr húsnæði fyrirtækisins sem innihalda teikningar af vélum. Nokkrir starfs- og stjórnarmenn Vélfags voru handteknir í aðgerðum saksóknara í dag. 21. janúar 2026 15:45
Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara Héraðssaksóknari gerði húsleit í höfuðstöðvum Vélfags á Akureyri í morgun og var Alfreð Tulinius, stjórnarformaður félagsins, handtekinn í tengslum við þær. Vélfag sætir viðskiptaþvingunum vegna tengsla eiganda fyrirtækisins við rússneska skuggaflotann. 21. janúar 2026 12:31