Skráði bóluefni sem dánarorsök án sannana Kjartan Kjartansson skrifar 19. mars 2026 15:51 Sami læknir skráði bólusetningu gegn Covid-19 sem dánarorsök fjögurra íbúa hjúkrunarheimila árið 2023. Fólkið lést fimm til fimmtán dögum eftir að það var bólusett. Læknirinn breytti skráningunni eftir að landlæknir fékk óháða sérfræðinga til þess að kanna málið. Vísir/Vilhelm Læknir sem skráði bóluefni við Covid-19 sem dánarorsök fjögurra einstaklinga á hjúkrunarheimilum sagðist ekki hafa neinar sannanir fyrir því þegar hann var spurður út í skráningarnar. Þeim var breytt í kjölfarið.
Embætti landlæknis fól tveimur óháðum sérfræðingum að kanna dánarvottorð fólksins, sem var allt búsett á hjúkrunarheimilum, þar sem þau voru fyrstu tilfellinn þar sem bóluefni var skráð dánarorsök frá því að útgáfa á sérstakri dánarmeinaskrá hófst. Dánarvottorðin voru uppfærð eftir athugun sérfræðinganna. Fólkið var allt með einn eða fleiri langvinna sjúkdóma og fékk fjölda lyfja á þeim tíma sem það lést. Það hafi ennfremur verið talið mikið mikinn eða mjög mikinn hrumleika. Fólkið lést fimm til fimmtán dögum eftir að það var bólusett gegn Covid-19 með bóluefni Pfizer árið 2023. Setti sig ekki upp á móti breytingum Læknirinn sem skráði bólusetningin hefði verið banamein fólksins sagðist tilbúinn að breyta skráningunni ef sérfræðingarnir sem fengnir voru til þess að kanna málið teldu rétt að gera það. Hann gæti ekki fært sönnur fyrir því að bóluefnið hefði verið dánarorsök fólksins. „Ef það er álit sérfræðinga embættisins að röksemdafærslu mína fyrir að rita Covid bólusetingu í dánarvottorðinu er ekki nægjanlega sterk er ég sáttur við að það verði tekið út úr skráninguna [svo] þar sem ég get auðvitað ekki sannað mál mitt,“ skrifaði læknirinn um eitt dánarvottorðanna í svarbréfi til embættis landlæknis í nóvember árið 2024 sem Vísir fékk afhent á grundvelli upplýsingalaga. Það var læknirinn sjálfur sem breytti skráningu sinn á dánarorsökum fólksins. Ef embætti telur álýktun mína um að Covid bólusetningu geti verið meðvirkandi orsök að dauða hans og að hann í staðinn hafi veiktst af hjartasjúkdóm daginn eftir lyfjagjöf fyrir tilviljun er ég reiðubúinn að breyta vottorðinu enda hef ég ekki óyggjandi sannanir fyrir niðurstöðu mína. Tóku undir sjónarmið að hluta til Sérfræðingarnir tóku að vissu leyti undir álit læknisins að almennt ætti ekki að bjóða allra veikustu og elstu íbúum hjúkrunarheimila Covid-19 bóluefni. Sum þessara fjögurra sem létust hefði verið með bráð veikindi og öll verið hrum. Einstaklingsmiðað mat ætti að fara fram á því hvort bólusetning væri viðeigandi hjá íbúum hjúkrunarheimila með hliðsjón af heilsufari þeirra. Almennt ætti að fresta bólusetningu hjá einstaklingum með bráð veikindi, hita eða bráða sýkingu og endurmeta þegar ástand þeirra væri betra. Þetta ætti við um alla aldurshópa en ekki síst þá sem eldri væru. Rökstuðningur embættis landlæknis fyrir því að gaumgæfa skráningu dánarorsaka fólksins var sá að mikilvægt væri að afla eins vandaðra upplýsinga og unnt væri um öryggi nýlegs bóluefnis gegn Covid-19.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira