Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 20. mars 2026 06:33 Leiðtogar Evrópu lýstu vanþóknun sinni í gær og gagnrýndu Orbán harðlega. AP/Omar Havana Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur vakið mikla reiði meðal Evrópuleiðtoga eftir að hann gekk á bak orða sinna. Orbán hafði í desember sagst myndu samþykkja 90 milljarða evra lán til Úkraínu svo lengi sem Ungverjar yrðu ekki meðal lánveitenda en hefur nú dregið það til baka.
Friedrich Merz, kanslari Þýskalands, hefur sakað Orbán um svik og segist sannfærður um að ákvörðun hans muni skilja eftir sig djúp sár. Þá sagði Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að Orbán hefði ekki staðið við orð sín en að menn myndu finna lausn til að greiða fyrir lánveitingunni. Fleiri leiðtogar stigu fram í gær og gagnrýndu ákvörðun Orbán, sem hefur viljað skilyrða samþykki sitt opnun olíuleiðslu sem flytur olíu frá Rússlandi til Ungverjalands og Slóvakíu um Úkraínu. Úkraínumenn segja leiðsluna hafa skemmst í árásum Rússa en Orbán hefur sakað þá um að tefja fyrir viðgerðum. Lánveitingin er þrautarlending eftir að Evrópuleiðtogunum tókst ekki að ná saman um að nota frystar eignir Rússa til að fjármagna varnir Úkraínu. Leiðtogar Ungverjalands, Slóvakíu og Tékklands samþykktu að standa ekki í vegi fyrir láninu með því skilyrði að ríkin yrðu undanskilin þátttöku. Gengið verður til kosninga í Ungverjalandi þann 12. apríl næstkomandi og óvíst um úrslit. Kaja Kallas, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins í utanríkismálum, segist efast um að lausn finnist á lánamálinu fyrir þann tíma. Málið er brýnt þar sem Úkraínumenn eru afar fjárþurfi.
Ungverjaland Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Evrópusambandið Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira