Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? Björn Berg Gunnarsson skrifar 24. mars 2026 07:00 Það verður ánægjulegt að fá ykkur aftur heim, en þetta er einmitt stórt skref og mikilvægt að undirbúa það vel. Þið þurfið að huga að ýmsu, meðal annars útborgun, lántökuskilyrðum, húsnæðisláninu sjálfu og hvernig það verður greitt niður. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Hvað þarf svo taka megi lán? Á námskeiðum mínum um íbúðalán er hefur þessi kafli lengst umtalsvert undanfarin misseri, enda heilmikið breyst. Hér er það helsta sem þið þurfið að kynna ykkur vel og vandlega og máta ykkur við: Hvað má lánið vera stórt? Sem fyrstu kaupendur verðið þið að safna minnst 10% af kaupverði hússins. Það er ekki þar með sagt að það dugi til að lánveitandi bjóði ykkur fjármögnun á hinum 90%, enda eru reglur lánveitenda hvað hámarkslán ólíkar og sömuleiðis hámarksfjárhæðir. Athugaðu þó að þegar farið er inn á íbúðamarkaðinn með það lítið eigið fé getur verið erfitt að endurfjármagna ef betri kjör bjóðast síðar, þar sem viðmið við endurfjármögnun eru önnur. Auk þess er þá yfirleitt um tvö eða fleiri lán að ræða, sem geta verið afar óhagstæð. Ef það er mögulegt er því gott að miða við að geta lagt fram amk. 30% við kaupin. Ýmiss skilyrði Seðlabankans Skv. nýlegum reglum Seðlabankans má greiðslybyrði lánsins ykkar ekki vera þyngri en 40% af útborguðum launum, en þið munuð einnig þurfa að standast greiðslumat. Þá verður litið til lánshæfismats ykkar og jafnvel hve lengi þið hafið búið á landinu eða greitt í lífeyrissjóð. Safnað fyrir útborgun Besta almenna ráðið sem ég get gefið ykkur varðandi það að safna fyrir útborgun er að flækja ekki málin. Undirbúið ykkur vel og haldið ykkur svo við það sem ákveðið hefur verið. Hér er dæmi um fyrstu skref: Skráið ykkur í viðbótarlífeyrissparnað við komuna heim. Þið munuð geta notað hann skattfrjálst við útborgun Tryggið ykkur fyrir öllu sem gæti brugðið fyrir ykkur fæti í ferlinu og raskað sparnaðinum. Það gerið þið með því að halda nauðsynlegan neyðarsjóð og spara með reglubundnum hætti fyrir því sem framundan er (svo sem endurnýjun á bíl og jólahaldi) Útbúið heimiisbókhald þar sem fram kemur hvert svigrúm ykkar til sparnaðar getur verið. Nánar hér: https://www.visir.is/g/20252766664d/hvernig-skipuleggjum-vid-utgjold-heimilisins- Þegar ljóst er hvað þið getið lagt mikið fyrir á mánuði má nota reiknivélar til að áætla ýmist þann tíma sem þetta mun taka ykkur, eða hve miklu þið getið safnað á fyrirframákveðnum tíma. Athugið að kaupverð eignarinnar gæti vaxið á sparnaðartímanum og því er gott að gera ráð fyrir að safna þurfi enn hærri fjárhæð en ef eignin væri keypt í dag. Nú hefjist þið handa við sparnaðinn og þá er mikilvægt að hann sé bæði sjálfvirkur og reglulegur. Hvaða sparnaðarkostir henta? Þú spyrð hvort þið ættuð að nota sparnaðarreikninga og það má vel vera, en það veltur meðal annars á því hve lengi skal spara. Það er rétt hjá þér að vextir bankareikninga eru ljómandi góðir þessa dagana og hafa verið að undanförnu. Reikningar geta verið þægilegir þar sem ekkert kostar að leggja inn á þá og þeir eru stöðugir. Þar má nefna sem dæmi húsnæðissparnaðarreikninga. Þar sem þú ert þrítugur er ekki of seint að nýta sér þá, en þeir gefa almenna nokkuð háa vexti. Aðrir kjósa að nýta sjóði við sparnað, en þeir eru mjög misjafnir og þá er mikilvægt að kynna sér kostnað, sveiflur, væntingar um ávöxtun og aðgengi. Aðalatriðið er þó að halda sig við sparnaðinn og leggja sem mest fyrir. Hvernig það tekst til mun eflaust hafa mun meiri áhrif en vextirnir. Hvaða lán verður tekið og hvar? Kynntu þér hvar þið hafið aðgengi að lánum. Hafi þið áður greitt í íslenska lífeyrissjóði sem mögulega vilja lána ykkur? Berið kjör þeirra saman við það sem bankarnir myndu bjóða. Lítið svo á smáa letrið þegar þið leitið að því hentugasta. Markmiðið er auðvitað að geta greitt lánið niður og þá er gott að velja lánsform sem bæði hentar ykkar greiðslugetu og gerir ykkur kleift að byggja upp eigið fé. Ég vona að þetta gangi vel hjá ykkur! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Lánamál Húsnæðismál Tengdar fréttir Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? 30 ára karl spyr: Hvernig finnur maður betur jafnvægið á milli eyðslu og sparnaðar? Ég hef haldið ítarlegt bókhald um öll föst útgjöld í excel og alla neyslu síðan ég keypti mína fyrstu íbúð 24 ára. Ég er almennt duglegur að spara og borga reglulega aukalega á lánið mitt. Hinsvegar á ég stundum erfitt með að „spreða“. Ég hugsa oft „ég ætti nú frekar að setja peninginn á lánið en að kaupa X“. Er þetta óhjákvæmileg afleiðing fjármálalæsis? Góð ráð þegin til að nota peninginn stundum í eitthvað gaman og „heimskulegt“. 24. febrúar 2026 07:01 Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? 30 ára karlmaður spyr: „Getur það verið „hagstætt“ að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl?“ 10. febrúar 2026 07:02 „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ 17 ára kona spyr: „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni? Þessar tölur hækka næstum með hverjum deginum. Lagast þetta? Hvenær þá? Og hvernig?“ 30. desember 2025 07:02 Mest lesið Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? Björn Berg Gunnarsson Viðskipti innlent Það sést hvar Sjálfstæðisflokkurinn stjórnar Guðni Freyr Öfjörð Úlfarsson Skoðun Sjálfstæðisflokkur sem er ekki hægt að taka alvarlega Þórður Snær Júlíusson Skoðun Hvers eiga íbúar efri byggða að gjalda? Helga Jónsdóttir Skoðun Flotinn sem hvarf: Líflína Íslands undir erlendum fánum Sólrún H.G. Proppé Skoðun Hver er stefna sveitarfélaga í menningar- og safnamálum? Dagrún Ósk Jónsdóttir Skoðun Viska og FÍN byggja óhagnaðardrifið húsnæði fyrir háskólamenntaða Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Menningarhús og framtíð safna í Skagafirði – um hvað snýst málið í raun? Berglind Þorsteinsdóttir Skoðun Forgangsröðun í öldrunarþjónustu Margrét Guðnadóttir Skoðun Af hverju óttast sumir og hafa andúð á flóttamönnum og innflytjendum? Tilgáta: Fólk óttast sig sjálft...... Gunnar Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Ekki vera sjálfsafgreiðslukassi! Þorsteinn Valdimarsson skrifar Skoðun Flotinn sem hvarf: Líflína Íslands undir erlendum fánum Sólrún H.G. Proppé skrifar Skoðun Hvers eiga íbúar efri byggða að gjalda? Helga Jónsdóttir skrifar Skoðun Viska og FÍN byggja óhagnaðardrifið húsnæði fyrir háskólamenntaða Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Af hverju óttast sumir og hafa andúð á flóttamönnum og innflytjendum? Tilgáta: Fólk óttast sig sjálft...... Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Hver er stefna sveitarfélaga í menningar- og safnamálum? Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar Skoðun Menningarhús og framtíð safna í Skagafirði – um hvað snýst málið í raun? Berglind Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver er málsvari dýranna? Hrönn Ólína Jörundsdóttir skrifar Skoðun Það sést hvar Sjálfstæðisflokkurinn stjórnar Guðni Freyr Öfjörð Úlfarsson skrifar Skoðun Hefðu bændur riðið í bæinn til að mótmæla Borgarlínunni? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Forgangsröðun í öldrunarþjónustu Margrét Guðnadóttir skrifar Skoðun Af hverju skipta félagasamtök máli – og langtíma fjármögnunin öllu? Eva Rós Ólafsdóttir skrifar Skoðun Af hverju eiga Íslendingar að vera stikkfrí í eigin vörnum Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkur sem er ekki hægt að taka alvarlega Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hafró fer yfir eigin lokapróf og fær glimrandi einkunn Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Kvótinn: Þriðji valkosturinn Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Hamingja og fjármálalæsi haldast í hendur Gústaf Steingrímsson skrifar Skoðun Íslenskt menningarlíf og RIFF Starfsfólk RIFF skrifar Skoðun Bókasöfn gegn einmanaleika Unnar Geir Unnarsson skrifar Skoðun Sósíalistar skila ekki auðu í húsnæðismálum Kópavogs Markús Candi skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfi framtíðarinnar Ólafur Eysteinn Sigurjónsson skrifar Skoðun Gervigreind leysir ekki mannlega þjónustu af hólmi – hún gerir hana verðmætari Ingibjörg Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð – byggð á fótfestu eða á hálum ís? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Íslensk útgerð í hættu vegna olíu – en lausnin gæti vaxið á ökrum Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Glansmynd eða staðreyndir: um loftslagsárangur Svíþjóðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Þegar biðlistinn víkur fyrir tímabundnum lausnum Eva Þorsteinsdóttir,Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar Skoðun Börnin okkar eiga skilið nýeldaðan mat, ekki verksmiðjumat Sigrún Elísabet Unnsteinsdóttir skrifar Skoðun Valdið færi annars til Brussel Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hlustað á Bítlakynslóðina Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Einfalt er best Linda Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Það verður ánægjulegt að fá ykkur aftur heim, en þetta er einmitt stórt skref og mikilvægt að undirbúa það vel. Þið þurfið að huga að ýmsu, meðal annars útborgun, lántökuskilyrðum, húsnæðisláninu sjálfu og hvernig það verður greitt niður. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru. Hvað þarf svo taka megi lán? Á námskeiðum mínum um íbúðalán er hefur þessi kafli lengst umtalsvert undanfarin misseri, enda heilmikið breyst. Hér er það helsta sem þið þurfið að kynna ykkur vel og vandlega og máta ykkur við: Hvað má lánið vera stórt? Sem fyrstu kaupendur verðið þið að safna minnst 10% af kaupverði hússins. Það er ekki þar með sagt að það dugi til að lánveitandi bjóði ykkur fjármögnun á hinum 90%, enda eru reglur lánveitenda hvað hámarkslán ólíkar og sömuleiðis hámarksfjárhæðir. Athugaðu þó að þegar farið er inn á íbúðamarkaðinn með það lítið eigið fé getur verið erfitt að endurfjármagna ef betri kjör bjóðast síðar, þar sem viðmið við endurfjármögnun eru önnur. Auk þess er þá yfirleitt um tvö eða fleiri lán að ræða, sem geta verið afar óhagstæð. Ef það er mögulegt er því gott að miða við að geta lagt fram amk. 30% við kaupin. Ýmiss skilyrði Seðlabankans Skv. nýlegum reglum Seðlabankans má greiðslybyrði lánsins ykkar ekki vera þyngri en 40% af útborguðum launum, en þið munuð einnig þurfa að standast greiðslumat. Þá verður litið til lánshæfismats ykkar og jafnvel hve lengi þið hafið búið á landinu eða greitt í lífeyrissjóð. Safnað fyrir útborgun Besta almenna ráðið sem ég get gefið ykkur varðandi það að safna fyrir útborgun er að flækja ekki málin. Undirbúið ykkur vel og haldið ykkur svo við það sem ákveðið hefur verið. Hér er dæmi um fyrstu skref: Skráið ykkur í viðbótarlífeyrissparnað við komuna heim. Þið munuð geta notað hann skattfrjálst við útborgun Tryggið ykkur fyrir öllu sem gæti brugðið fyrir ykkur fæti í ferlinu og raskað sparnaðinum. Það gerið þið með því að halda nauðsynlegan neyðarsjóð og spara með reglubundnum hætti fyrir því sem framundan er (svo sem endurnýjun á bíl og jólahaldi) Útbúið heimiisbókhald þar sem fram kemur hvert svigrúm ykkar til sparnaðar getur verið. Nánar hér: https://www.visir.is/g/20252766664d/hvernig-skipuleggjum-vid-utgjold-heimilisins- Þegar ljóst er hvað þið getið lagt mikið fyrir á mánuði má nota reiknivélar til að áætla ýmist þann tíma sem þetta mun taka ykkur, eða hve miklu þið getið safnað á fyrirframákveðnum tíma. Athugið að kaupverð eignarinnar gæti vaxið á sparnaðartímanum og því er gott að gera ráð fyrir að safna þurfi enn hærri fjárhæð en ef eignin væri keypt í dag. Nú hefjist þið handa við sparnaðinn og þá er mikilvægt að hann sé bæði sjálfvirkur og reglulegur. Hvaða sparnaðarkostir henta? Þú spyrð hvort þið ættuð að nota sparnaðarreikninga og það má vel vera, en það veltur meðal annars á því hve lengi skal spara. Það er rétt hjá þér að vextir bankareikninga eru ljómandi góðir þessa dagana og hafa verið að undanförnu. Reikningar geta verið þægilegir þar sem ekkert kostar að leggja inn á þá og þeir eru stöðugir. Þar má nefna sem dæmi húsnæðissparnaðarreikninga. Þar sem þú ert þrítugur er ekki of seint að nýta sér þá, en þeir gefa almenna nokkuð háa vexti. Aðrir kjósa að nýta sjóði við sparnað, en þeir eru mjög misjafnir og þá er mikilvægt að kynna sér kostnað, sveiflur, væntingar um ávöxtun og aðgengi. Aðalatriðið er þó að halda sig við sparnaðinn og leggja sem mest fyrir. Hvernig það tekst til mun eflaust hafa mun meiri áhrif en vextirnir. Hvaða lán verður tekið og hvar? Kynntu þér hvar þið hafið aðgengi að lánum. Hafi þið áður greitt í íslenska lífeyrissjóði sem mögulega vilja lána ykkur? Berið kjör þeirra saman við það sem bankarnir myndu bjóða. Lítið svo á smáa letrið þegar þið leitið að því hentugasta. Markmiðið er auðvitað að geta greitt lánið niður og þá er gott að velja lánsform sem bæði hentar ykkar greiðslugetu og gerir ykkur kleift að byggja upp eigið fé. Ég vona að þetta gangi vel hjá ykkur!
Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi svarar spurningum frá lesendum Vísis um allt sem tengjast fjármálum, fjárfestingum og öðru.
Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? 30 ára karl spyr: Hvernig finnur maður betur jafnvægið á milli eyðslu og sparnaðar? Ég hef haldið ítarlegt bókhald um öll föst útgjöld í excel og alla neyslu síðan ég keypti mína fyrstu íbúð 24 ára. Ég er almennt duglegur að spara og borga reglulega aukalega á lánið mitt. Hinsvegar á ég stundum erfitt með að „spreða“. Ég hugsa oft „ég ætti nú frekar að setja peninginn á lánið en að kaupa X“. Er þetta óhjákvæmileg afleiðing fjármálalæsis? Góð ráð þegin til að nota peninginn stundum í eitthvað gaman og „heimskulegt“. 24. febrúar 2026 07:01
Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? 30 ára karlmaður spyr: „Getur það verið „hagstætt“ að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl?“ 10. febrúar 2026 07:02
„Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ 17 ára kona spyr: „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni? Þessar tölur hækka næstum með hverjum deginum. Lagast þetta? Hvenær þá? Og hvernig?“ 30. desember 2025 07:02
Viska og FÍN byggja óhagnaðardrifið húsnæði fyrir háskólamenntaða Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Menningarhús og framtíð safna í Skagafirði – um hvað snýst málið í raun? Berglind Þorsteinsdóttir Skoðun
Af hverju óttast sumir og hafa andúð á flóttamönnum og innflytjendum? Tilgáta: Fólk óttast sig sjálft...... Gunnar Björgvinsson Skoðun
Skoðun Viska og FÍN byggja óhagnaðardrifið húsnæði fyrir háskólamenntaða Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Af hverju óttast sumir og hafa andúð á flóttamönnum og innflytjendum? Tilgáta: Fólk óttast sig sjálft...... Gunnar Björgvinsson skrifar
Skoðun Menningarhús og framtíð safna í Skagafirði – um hvað snýst málið í raun? Berglind Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju skipta félagasamtök máli – og langtíma fjármögnunin öllu? Eva Rós Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Gervigreind leysir ekki mannlega þjónustu af hólmi – hún gerir hana verðmætari Ingibjörg Valdimarsdóttir skrifar
Skoðun Íslensk útgerð í hættu vegna olíu – en lausnin gæti vaxið á ökrum Sigurpáll Ingibergsson skrifar
Skoðun Þegar biðlistinn víkur fyrir tímabundnum lausnum Eva Þorsteinsdóttir,Katrín Haukdal Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Börnin okkar eiga skilið nýeldaðan mat, ekki verksmiðjumat Sigrún Elísabet Unnsteinsdóttir skrifar
Viska og FÍN byggja óhagnaðardrifið húsnæði fyrir háskólamenntaða Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Menningarhús og framtíð safna í Skagafirði – um hvað snýst málið í raun? Berglind Þorsteinsdóttir Skoðun
Af hverju óttast sumir og hafa andúð á flóttamönnum og innflytjendum? Tilgáta: Fólk óttast sig sjálft...... Gunnar Björgvinsson Skoðun