Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. mars 2026 06:56 Þrátt fyrir stríð og versnandi efnahagsástand var létt yfir Bandaríkjaforseta í gær, sem heimsótti meðal annars Graceland, heimili Elvis Presley. Velti hann því meðal annars upphátt fyrir sér hvor hefði unnið í slag, hann eða Elvis. AP/Mark Schiefelbein Einhverjar þreifingar virðast hafa átt sér stað á bakvið tjöldin milli stjórnvalda í Bandaríkjunum og Íran um mögulegar leiðir til að binda enda á átökin sem nú standa yfir, ef marka má erlenda miðla. Eiginlegar viðræður virðast þó ekki hafnar.
Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá því í gær að viðræður hefðu átt sér stað milli fulltrúa Bandaríkjanna og Íran um leiðir til að enda átökin. Sagði hann að í kjölfar „uppbyggilegra“ samtala hefði hann ákveðið að gefa Írönum lengri frest til að koma til móts við kröfur hans um opnun Hormuz-sunds. Hann hafði áður sagst myndu ráðast á orkuinnviði landsins ef sundið yrði ekki opnað innan 48 klukkustunda. Þess ber að geta að sundið er ekki beinlínis lokað, heldur veigra menn sér ekki þar í gegn vegna hótana og árása Írana á flutningskip á sundinu. Háttsettir íranskir embættismenn voru fljótir að bera fregnirnar til baka, meðal annars Mohammad Bagher Ghalibaf, forseti þingsins, sem sagði engar viðræður hafa átt sér stað. Um væri að ræða „falsfréttir“ af hálfu Bandaríkjaforseta, sem væri ætlað að hafa áhrif á olíuverð og fjármálamarkaði. Esmaeil Baghaei, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, sagði hins vegar að milliliðir hefðu komið skilaboðum frá Bandaríkjamönnum á framfæri, þar sem óskað var eftir viðræðum til að binda enda á átökin. Samtöl, viðræður... punktar? Sjálfur sagði Bandaríkjaforseti Steve Witkoff og Jared Kushner fara fyrir viðræðunum en New York Times hefur eftir ónefndum heimildarmönnum að Witkoff hafi sannarlega átt samtöl við utanríkisráðherrann Abbas Araghchi á síðustu dögum. Þau samtöl hefðu hins vegar varðað það að draga úr spennu; ekki hefði verið um eiginlegar samningaviðræður að ræða. Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, sagði í gær að viðræðurnar væru á viðkvæmu stigi og að stjórnvöld vestanhafs hygðust ekki „semja í gegnum fjölmiðla“, eins og hún orðaði það. Þá ættu menn ekki að leggja mikið upp úr fregnum af mögulegum fundum nema þeir hefðu verið staðfestir af Hvíta húsinu. Áður höfðu borist fregnir af mögulegum fundum í vikunni. Samkvæmt CBS hafa Íranir staðfest að þeim hafi borist „punktar“ frá samningamönnum í Bandaríkjunum. Þá hafa stjórnvöld í Pakistan boðist til að halda samningafundi milli aðila. Samkvæmt erlendum miðlum hafa Ísraelar ekki átt aðkomu að þreifingum milli Bandaríkjanna og Írana.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Íran Hernaður Ísrael Pakistan Donald Trump Mest lesið Tengja „kuldapollinn“ við Ísland við veikari AMOC Innlent Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Rannsaka áflog við verslunarmiðstöð í Kópavogi Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Fluglistir sýndar yfir Reykjavíkurflugvelli Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Fleiri fréttir Ísrael og Rússland á svörtum lista vegna kynferðisofbeldis í átökum Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Sjá meira