Ólafur leggur skóna á hilluna: „Auðvitað er þetta svolítið skrýtið“ Sindri Sverrisson skrifar 25. mars 2026 12:14 Ólafur Guðmundsson lék um árabil í íslenska landsliðsbúningnum. Getty/Nikola Krstic Ólafur Guðmundsson, landsliðsmaður í handbolta og atvinnumaður til 15 ára, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann lítur stoltur um öxl. „
Auðvitað er þetta svolítið skrýtið. Þetta er búið að vera í ferli í smátíma svo maður er búinn að melta þetta hægt og rólega, en þegar maður segir þetta svo upphátt þá er það smásjokk,“ sagði Ólafur þegar hann staðfesti þessar fréttir við Stefán Árna Pálsson í vikunni. Ólafur, sem er 35 ára, er uppalinn hjá FH en fór ungur út í atvinnumennsku og var snemma kominn inn í A-landsliðið sem hann fór með á fjölda stórmóta, fyrst á EM í Austurríki árið 2010 þegar Ísland vann brons. Þessi öfluga, rétthenta skytta lék stóran hluta atvinnumannsferilinn með Kristianstad í Svíþjóð, þar sem hann er núna búsettur ásamt fjölskyldu sinni, en hefur einnig leikið í Danmörku, Þýskalandi, Frakklandi og Sviss. Ólafur ætlaði sér að eiga síðasta tímabil ferilsins með Karlskrona í Svíþjóð í vetur en ekkert varð af því að hann gæti spilað á þessari leiktíð. „Síðasta sumar fékk ég í bakið. Brjósklos. Ég er búinn að vera að reyna að koma mér aftur inn á völlinn, með misgóðum árangri, en ekki náð að spila neinn leik. Núna þegar síðasti hlutinn á tímabilinu er að renna upp þá sá ég ekki að ég gæti komið með neitt að borðinu, fannst mér. Ég var búinn að ákveða að þetta yrði mitt síðasta tímabil og af virðingu við mig og við liðið þá ákvað ég að kalla þetta gott í stað þess að vera að reyna að þjösnast og þvinga eitthvað fram. Þetta er ágætis tímapunktur,“ sagði Ólafur en nánar er rætt við hann í Sportpakkanum á Sýn í kvöld.
Sænski handboltinn Handbolti Landslið karla í handbolta Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Yfirheyrður í ellefu tíma: „Ég er með réttu skjölin og vegabréfsáritun“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Íslenski boltinn „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ Körfubolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira