Segir viðsemjendur ekki þora að gangast við viðræðum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 26. mars 2026 07:23 Trump er í afar þröngri stöðu og getur varla lýst yfir sannfærandi sigri á þessu stigi málsins. Getty/Chip Somodevilla Donald Trump Bandaríkjaforseti segir stjórnvöld í Íran áfjáð í að komast að samkomulagi til að binda enda á árásir Bandaríkjanna og Ísrael en að þau séu hrædd við að viðurkenna það. Viðsemjendur Bandaríkjanna óttist að vera myrtir af eigin stjórn. „Þeir eru líka hræddir um að verða drepnir af okkur,“ sagði forsetinn í gær.
Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, staðhæfði í gær að árangursrík samtöl hefðu átt sér stað milli fulltrúa Bandaríkjanna og Íran síðustu þrjá daga. Íranir væru að leita að „útgönguleið“. Þvert á fullyrðingar stjórnvalda í Washington virðist hins vegar margt benda til þess að það séu þau sem séu að leita að útgönguleið, út úr illa ígrunduðum aðgerðum. Þrátt fyrir að einhverjar þreifingar virðist hafa átt sér stað bakvið tjöldinn ítrekaði Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, í gær að þarlend stjórnvöld hefðu alls ekki í hyggju að setjast að samningaborðinu. Að minnsta kosti í bili. Íranir, þrátt fyrir að hafa sætt hörðum árásum síðustu vikur, eiga enda nokkur tromp á hendi. Umferð um Hormuz-sund liggur enn niðri vegna hótana þeirra og þannig er útlit fyrir áframhaldandi hækkanir á olíuverði og óvissu á fjármálamörkuðum að óbreyttu. Þá hafa þeir haldið árásum áfram á nágrannaríkin, sem eru afar berskjölduð fyrir tiltölulega ódýrum drónahernaði Íran. Eftir að hafa valdið stórkostlegum usla, sem mun hafa með sér afdrifaríkar afleiðingar hvernig sem á það er litið, virðist Trump fastur. Honum hefur hvorki tekist að koma stjórnvöldum frá né leggja hald á birgðir Írana af auðguðu úrani, sem þeir munu líklega sækja fast að varðveita og nýta eftir það sem á undan er gengið. Vegna þessa er alls ekki hægt að útiloka frekari stigmögnun.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Ísrael Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira