Óþarfi að fella niður allt skólahald Stefán Steingrímur Bergsson skrifar 26. mars 2026 15:16 Ég er kennari í Reykjavík. Kenni unglingum sem ljúka grunnskóla í vor. Sultuslakur eftir að hafa í rólegheitum drukkið kaffi með konunni í morgun – því ekki fór ég í vinnuna enda engir nemendur sem biðu mín. Ákvörðun Reykjavíkurborgar að fella niður allt skólastarf þarf að gagnrýna. Það á ekki að þurfa að fellt niður allt skólahald. Sannarlega má vera sammála því að sú þróun að Íslendingar taki veður alvarlega sé með ágætum. Ýmis samfélagslegur kostnaður getur hlotist af óveðrum – og eftir því sem færri eru úti minnkar kostnaðurinn og slysin færri. En það er mjög slæmt að tugþúsundir barna fari ekki í skólann í heilan dag. Af því er einnig samfélagslegur kostnaður. Þó það sé óveður og veðurviðvörun þá þyrftu ekki allir að vera heima. Sannarlega ekki stálpaðir nemendur í unglingadeild. Hugmynd að lausn Hver skóli skilgreinir hversu margir starfsmenn geta mætt þegar það er veðurviðvörun. Starfsmenn sem búa það nálægt skóla að þeir geti mætt án þess að mæting þeirra til vinnu hafi mögulega með sér í för aukið álag á viðbragðsaðila Út frá þeim starfsmannafjölda sem getur mætt er tekið á móti eins mörgum nemendum og sá starfsmannafjöldi getur tekið á móti. Stundatöflur aðlagaðar að skrýtnum degi. Allt fyrir fram skilgreint. Skólinn gefur út viðmið til foreldra frá hvaða hverfum skólans er ætlast til að nemendur mæti. Þ.e. óhætt að þeir gangi til skóla. Á mannamáli þá ætti hver skóli alveg að geta mannað sig svona sirka 10-25% þó það sé veðurviðvörun og án þess að það komi niður á viðbragðsaðilum eða starfsfólki sjálfu. Og slík mönnun myndi fá tugi eða hundruð nemenda í hús, ef þeir þá hefðu hríðina af. Það er hægt að gera þetta öðruvísi! Höfundur kennir gagnrýna hugsun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Óveður 26. mars 2026 Skóla- og menntamál Grunnskólar Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Ég er kennari í Reykjavík. Kenni unglingum sem ljúka grunnskóla í vor. Sultuslakur eftir að hafa í rólegheitum drukkið kaffi með konunni í morgun – því ekki fór ég í vinnuna enda engir nemendur sem biðu mín. Ákvörðun Reykjavíkurborgar að fella niður allt skólastarf þarf að gagnrýna. Það á ekki að þurfa að fellt niður allt skólahald. Sannarlega má vera sammála því að sú þróun að Íslendingar taki veður alvarlega sé með ágætum. Ýmis samfélagslegur kostnaður getur hlotist af óveðrum – og eftir því sem færri eru úti minnkar kostnaðurinn og slysin færri. En það er mjög slæmt að tugþúsundir barna fari ekki í skólann í heilan dag. Af því er einnig samfélagslegur kostnaður. Þó það sé óveður og veðurviðvörun þá þyrftu ekki allir að vera heima. Sannarlega ekki stálpaðir nemendur í unglingadeild. Hugmynd að lausn Hver skóli skilgreinir hversu margir starfsmenn geta mætt þegar það er veðurviðvörun. Starfsmenn sem búa það nálægt skóla að þeir geti mætt án þess að mæting þeirra til vinnu hafi mögulega með sér í för aukið álag á viðbragðsaðila Út frá þeim starfsmannafjölda sem getur mætt er tekið á móti eins mörgum nemendum og sá starfsmannafjöldi getur tekið á móti. Stundatöflur aðlagaðar að skrýtnum degi. Allt fyrir fram skilgreint. Skólinn gefur út viðmið til foreldra frá hvaða hverfum skólans er ætlast til að nemendur mæti. Þ.e. óhætt að þeir gangi til skóla. Á mannamáli þá ætti hver skóli alveg að geta mannað sig svona sirka 10-25% þó það sé veðurviðvörun og án þess að það komi niður á viðbragðsaðilum eða starfsfólki sjálfu. Og slík mönnun myndi fá tugi eða hundruð nemenda í hús, ef þeir þá hefðu hríðina af. Það er hægt að gera þetta öðruvísi! Höfundur kennir gagnrýna hugsun.
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar