Mikið vona ég að þetta sé ekki rétt Jón Pétur Zimsen skrifar 28. mars 2026 07:03 Ég vil ekki trúa því. En það verður hins vegar sífellt erfiðara að afgreiða það sem einhvers konar samsæriskenningu enda hrannast sönnunargögnin upp. Getur það verið að ríkisstjórnin sé meðvitað að stuðla að verra efnahagsástandi til þess að auka líkurnar á því að niðurstaða þjóðaratkvæðisins í lok ágúst verði henni að skapi? Að fólk verði svartsýnna á framtíðina og stökkvi á ESB-vagninn? Ekki síst í ljósi slæms efnahagsástands innan sambandsins? Það megi ekki verða betra hér? Vaxandi umræða hefur verið um þetta í þjóðfélaginu og nú undir það síðasta eru aðilar í atvinnulífinu farnir fyrir alvöru að velta þessu fyrir sér opinberlega. „Við erum í skrítinni stöðu. Við erum með ríkisstjórn sem vill troða okkur í ESB og maður hreinlega spyr sig hvort ríkisstjórnin sé að reyna að hafa efnahagsmálin hér heima í algjörum ólestri til þess að auka líkurnar á að fólk velji að fara í ESB.“ Þetta sagði Daði Kristjánsson, fjármálahagfræðingur og framkvæmdastjóri Viska sjóðir, á Facebook-síðu sinni í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabankans nýverið. Hliðstætt sjónarmið kom t.d. einnig fram hjá Stefáni Guðmundssyni, framkvæmdastjóra Gentle Giants af sama tilefni. Þetta eru ekki aðilar sem segja svona af léttúð. Vitum hvað gerðist þegar verðbólgan jókst Forystumönnum ríkisstjórnarinnar er í það minnsta fullljóst um tengslin þarna á milli. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar talaði til dæmis um það í hlaðvarpsþættinum Chess After Dark í ágúst 2024: „Það sem gerist svo ítrekað með Evrópusambandið er þegar það gengur illa, þegar það er komin verðbólga, þegar það eru háir vextir, þá byrjar fólk að vilja ganga inn í Evrópusambandið.“ Betri staða efnahagslífsins er að sama skapi líklegri til þess að hafa öfug áhrif. Skapa bjartsýni á framtíðina. Þetta vita Viðreisnarráðherrarnir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra auðvitað líka. Við vitum öll t.d. hvað gerðist í byrjun ársins þegar verðbólgan jókst einkum vegna ákvarðana ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrri margítrekaðar viðvaranir. Síðan hafa þær skattahækkanir farið út í verðlagið og stuðlað að enn meiri verðbólgu. Kæruleysið algert Við erum með sprenglærða hagfræðinga sem bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra. Fólk sem taldi sig öðrum fremur fært um að ná niður verðbólgunni og hafði uppi um það stór orð fyrir þingkosningarnar. Sleggjan og það allt. Það er ekki nóg með að þeim hafi ekki tekist að ná niður verðbólgunni. Hún er nú orðin mun meiri en þegar ríkisstjórnin tók við. Og það einkum vegna aðgerða hennar sjálfrar. Kæruleysið gagnvart stöðu mála er á sama tíma algert. Pólitíski hvatinn er fyrir hendi til þess að reyna að auka líkurnar á því að samþykkt verði að setja stefnuna á ESB í lok ágúst. Hann verður áfram til staðar verði það niðurstaðan enda á þá eftir að fá fólk til þess að samþykkja samning eftir einhver ár. Ég vona að þetta sé ekki rétt. Ég vona það innilega enda þá um að ræða ömurlega framkomu í garð þjóðarinnar. En flest og sífellt fleira bendir því miður til þess. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Sjálfstæðisflokkurinn Jón Pétur Zimsen Mest lesið Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Skoðun Skoðun Til hamingju... með hvað? Einar Jóhannes Guðnason skrifar Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað kemur ESB málinu við? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar Skoðun Flokkur fólksins klippir á bremsur unga fólksins Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Tilvistarkreppa borðstofunnar Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tíminn sem tapast þegar næringin fylgir ekki æfingaálaginu Lilja Guðmundsdóttir ,Arnar Sölvi Arnmundsson skrifar
Skoðun Ekkert leyniletur heldur íslenskt ritmál – Punktaletur á að vera sjálfsagður hlutur Hjalti Sigurðsson skrifar
Skoðun Barn fyrir bíl Albína Pálsdóttir,Anna Margrét Ásbjarnardóttir,Brynhildur Bolladóttir,Geir Finnsson,Gísli Marteinn Baldursson,Halldóra Þórsdóttir,Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir,Kjartan Sveinn Guðmundsson,Rán Flygenring,Sveinn Þórhallsson ,Viktor Lorange skrifar
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar