Valsmenn í undanúrslitaeinvígið á móti KA Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2026 19:36 Hinn ungi Gunnar Róbertsson var atkvæðamikill hjá Valsmönnum í kvöld. Vísir/Diego Deildarmeistarar Valsmanna fylgdu fordæmi KA-manna eftir og tryggðu sér sæti í undanúrslitum Olísdeildar karla í handbolta.
Valur sló HK út 2-0 eftir tvo hörkuleiki en sömu sögu var að segja af verðandi mótherjum þeirra í KA sem slógu ÍBV út 2-0 eftir tvo hnífjafna leiki. Liðin mætast því í undanúrslitunum í ár. Valur vann fjögurra marka sigur á HK í Kórnum í kvöld, 32-28, eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik, 14-13. Gunnar Róbertsson var flottur í kvöld og skoraði tíu mörk fyrir Val úr aðeins þrettán skotum. Bjarni Í Selvindi var með fjögur mörk eins og Arnór Snær Óskarsson sem var einnig með sex stoðsendingar. Þorgils Jón Svölu Baldursson og Daníel Örn Guðmundsson skoruðu báðir einnig fjögur mörk. Björgvin Páll Gustavsson varði þrettán skot í markinu. Sigurður Jefferson Guarino skoraði mest fyrir HK eða sjö mörk en Ágúst Guðmundsson var með sex mörk og Haukur Ingi Hauksson skoraði fimm mörk eins og Tómas Sigurðarson. HK-menn bitu frá sér og voru komnir í 16-14 eftir að hafa skorað þrjú fyrstu mörk seinni hálfleiksins. Valsmenn svöruðu því með fjórum mörkum í röð og voru þá komnir 19-16 yfir. Leikurinn var þó langt frá því að vera búinn því HK-ingar gáfust svo sannarlega ekki upp. Þeir minnkuðu muninn niður í eitt mark en nær komust þeir ekki og Valsmenn lönduðu sigri og farseðli í undanúrslitin.
Olís-deild karla Valur HK Mest lesið Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd Fótbolti Fýluferð til Keflavíkur: „Vitum ekkert eins og staðan er núna“ Fótbolti Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Sjáðu ruglið í Formúlunni í morgun Formúla 1 Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Fótbolti Strákarnir sitja fastir Fótbolti Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna Íslenski boltinn Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Fleiri fréttir Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Elín Klara í ham í Austurríki | Sveinar Guðjóns misstu Kiel fram úr sér Eyjakonur juku á raunir HK Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Mögnuð Jóhanna með yfir helming marka Hauka í sigri Fyrsti sigur lærisveina Arnórs kom í spennutrylli Gunnar með ellefu mörk í sigri Vals Haukur skoraði sjö í Íslendingaslag Viktor og Janus fengu silfur á HM eftir að gamall félagi stal senunni Hákon Daði Styrmisson: „Standardinn þarf að vera hærri“ Haukar halda sigurgöngunni áfram KA með sannfærandi sigur á Eyjamönnum Uppgjörið: Fram - Afturelding 24-42 | Niðurlæging í Úlfarsárdal Markmenn beggja liða áttu stórleik í sigri Fram Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Svekkjandi tap FH eftir góðan lokasprett Ellefu marka Ómar kom Magdeburg á toppinn Kannast ekki við krísufund á Hlíðarenda Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda „Held að fólk átti sig ekki á því sem við vorum að gera í kvöld“ Uppgjörið: Valur - Mors-Thy 39-28 | Þar lágu Danir í þvi Hörður svarar: „Svo alvarlegar ásakanir eiga ekki heima í opinberri umræðu“ Veittist að þjálfara í 3. flokki og málið á borð HSÍ Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Minden keypti Erling af ÍBV Guðjón Valur hafði betur gegn Arnóri Sjá meira