Arsenal-stjörnurnar yfirgefa landslið sín hver á fætur öðrum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. mars 2026 20:53 Bukayo Saka spilar ekki í þessum landsliðsglugga vegna meiðsla. Getty/Visionhaus Næstum því heilt byrjunarlið af leikmönnum Arsenal hefur dregið sig úr landsliðsverkefnum á síðustu dögum.
Ef Martin Ödegaard, sem hefur glímt við meiðsli í langan tíma og var ekki valinn í norska hópinn, er talinn með eru ellefu leikmenn fjarverandi sem hefðu annars átt að spila fyrir hönd þjóðar sinnar á næstu dögum. Þegar miðvörðurinn Gabriel dró sig úr brasilíska hópnum fyrir sex dögum var hann fimmti leikmaðurinn sem mætti ekki til landsliðsþjónustu. Þá leit listinn svona út: Leandro Trossard (Belgía), William Saliba (Frakkland), Eberechi Eze (England), Jurriën Timber (Holland) og Gabriel (Brasilía). Síðan þá hefur listinn tvöfaldast: Noni Madueke (England), Bukayo Saka (England), Declan Rice (England), Piero Hincapié (Ekvador) og Martín Zubimendi (Spánn) hafa allir dregið sig úr hóp vegna meiðsla. Mikel Arteta stjóri Arsenal þarf á heilum leikmannahópi að halda fyrir lokasprett tímabilsins. Í ensku úrvalsdeildinni hefur Lundúnaliðið níu stiga forskot á Manchester City, sem á leik til góða. Vonandi fyrir Arsenal eru þessi meiðsli ekki alvarleg og aðeins til að passa upp á heilsu leikmanna nú þegar úrlsitin ráðast á leiktíðinni. Þetta eru því ekki góðar fréttir nú þegar pressan er enn meiri á liðinu eftir slaka frammistöðu í úrslitaleik enska deildabikarsins á móti Manchester City. View this post on Instagram A post shared by AFTV (@aftvmedia)
Enski boltinn Arsenal FC HM 2026 í fótbolta Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri Fótbolti Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Sara Björk snýr heim í Hauka Íslenski boltinn Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Sjá meira