Ætla að fá þjóðernisflokki völdin í innflytjendamálum Kjartan Kjartansson skrifar 1. apríl 2026 15:02 Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar og leiðtogi Moderaterna, (t.h.) og Jimmie Åkesson, leiðtogi Svíþjóðardemókrata, (t.v.) voru lukkulegir hvor með annan þegar þeir kynntu kosningabandalag sitt í dag. AP/Jonas Ekstromer/TT Svíþjóðardemókratar verða teknir inn í ríkisstjórn og fá innflytjenda- og aðlögunarmálin í sínar hendur ef hægri flokkarnir sigra í þingkosningum í Svíþjóð seinna á þessu ári. Þetta tilkynnti Ulf Kristersson, forsætisráðherra, í dag.
Kristersson, leiðtogi Moderaterna, leiðir miðhægri ríkisstjórn fjögurra flokka sem Svíþjóðardemókrata verja falli á grundvelli svokallaðs Tidö-samkomulags sem flokkarnir gerðu með sér eftir síðustu kosningar. Forsætisráðherrann blés til blaðamannafundar með Jimmie Åkesson, leiðtoga Svíþjóðardemókrata, í dag. Þar tilkynntu þeir að Svíþjóðardemókratar fengju umtalsverð áhrif í ríkisstjórn ef Tidö-flokkarnir vinna meirihluta í þingkosningum í september. „Í slíkri ríkisstjórn fengju Svíþjóðardemókratar umtalsverð áhrif á stefnu og mikilvægar ráðherrastöðu í innflytjenda- og aðlögunarmálum,“ sagði Kristersson sem verður forsætisráðherraefni kosningabandalagsins. Åkesson sagðist búast við að fá áhrif í samræmi við þingstyrk eftir kosningar. Þau skiptu flokkinn meira máli en fjöldi embætta eða vegtylla. Hann hafði áður boðað að flokkurinn yrði í stjórnarandstöðu ef han yrði ekki formlegur hluti af ríkisstjórn næst. Svíþjóðardemókratar hafa verið skilgreindir sem þjóðernisíhaldsflokkur og stundum fjarhægri þó að þeir þvoi hendur sínar sjálfir af þeim stimpli. Flokkurinn var stofnaður af nýnasistum og hvítum þjóðernissinnum á 9. áratug síðustu aldar en undir forystu Åkesson hefur hann lappað upp á ímynd sína. Åkesson gaf út opinbera afsökunarbeiðni í fyrra vegna sögulegra tengsla flokksins við nýnastahreyfinguna í Svíþjóð.
Svíþjóð Þingkosningar í Svíþjóð Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira