Upp­gjör: Kefla­vík 88-77 KR | Tene-ferð þjálfarans hafði engin á­hrif

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
KR - Keflavík Bónus deild kvenna Vetur 2026
KR - Keflavík Bónus deild kvenna Vetur 2026

Keflavík jafnaði einvígi sitt gegn KR með ellefu stiga sigri í Blue-höllinni í Keflavík í kvöld í öðrum leik liðanna í úrslitakeppni Bónus deildar kvenna í körfubolta. Lokatölur 88-77 Keflavík í vil í hörku leik.

Keflavík byrjaði fyrsta leikhlutann vel þó KR var alltaf skammt undan. KR gerði áhlaup á lokamínútunni og leiddi með fimm stigum þegar leikhlutinn var flautaður af.

Annar leikhluti byrjaði stórkostlega hjá heimakonum sem settu niður þrjár þriggja stiga körfur í röð á móti engu stigi hjá KR. Fyrstu fjórar mínútur leikhlutans leiddi Keflavík með ellefu stigum gegn engu. KR gerði þá fínt áhlaup en komust ekki mikið nær og munaði sex stigum á liðunum er þau gengu til búningsherbergjanna.

Keflavík komst fljótt í tíu stiga forystu í þriðja leikhluta en það dugði skammt því KR gerði fínt áhlaup og tókst að minnka muninn í tvö stig.

KR kom af krafti út í fjórða leikhluta á meðan lítið gekk upp hjá Keflvíkingum. KR komust yfir og leiddu með þremur stigum en þó í skamma stund eftir tvær góðar sóknir frá Keflavík.

Keflavík sneri leiknum algjörlega sér í vil um miðbik leikhlutans og var liðið fljótlega farið að leiða með níu stigum. KR hafði þá engin svör og virtist þreyta vera að hrjá liðið. 

Ellefu stiga sigur Keflavíkur niðurstaðan og ljóst að Tene-ferð þjálfarans sem var mikið í fjölmiðlum hafði engin áhrif á liðið. Staðan í einvíginu því 1-1.

Stjörnur og skúrkar

Sara Rún Hinriksdóttir var stigahæst hjá Keflavík með 22 stig, sex fráköst og þrjár stoðsendingar. Keishana Washington kom þar næst með 17 stig, heil 16 fráköst og 10 stoðsendingar.

Molly var atkvæðamest í KR liðinu með 22 stig, sex fráköst og sex stoðsendingar.

Stemning og umgjörð

Fín mæting í stúkuna og stemningin kom loksins í fjórða leikhlutanum.

Dómarar

Bjarki Þór Davíðsson, Jakob Árni Ísleifsson og Daníel stóðu vaktina á parketinu í dag. Þeir kíktu tvisvar í skjáinn en að öðru leyti lítið um kvartanir hjá báðum liðum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira