Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Agnar Már Másson skrifar 5. apríl 2026 07:43 Íranska ríkisútvarpið birti þessar myndir í gær af því sem virðist vera brak úr orrustuþotunni, IRNA Bandaríkjaher tókst í gær að bjarga bandaríska flugliðanum sem hefur verið týndur í Íran síðan á föstudag, þegar bandarísk orrustuþota var skotin niður yfir Íran. Íranir og Bandaríkjamenn kepptust við að vera fyrstir til að finna hann.
Þetta kemur fram í samfélagsmiðlafærslu Donalds Trump Bandaríkjaforseta, en þar segir að flugliðanum hafi verið bjargað við háskalega björgunaraðgerð í gærkvöldi. „Hann hlaut sár, en hann verður í lagi,“ skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti í færslu á samfélagsmiðlum í nótt. Hermaðurinn sé heill á húfi og enginn bandarískur hermaður hafi fallið í björgunaraðgerðinni. Færsla Trumps.Truth Hann segir að tugir flugvéla hafi komið að aðgerðinni og að Bandaríkin hafi fylgst með staðsetningu flugliðans allan sólarhringinn. Tveir voru um borð í F-15 orrustuþotunni sem skotin var niður á föstudag. Báðir köstuðu sér útbyrðis, flugmanni þotunnar var bjargað samdægurs en leit hefur staðið yfir af flugliðanum þar til í gærkvöldi. Þetta er fyrsta bandaríska þotan sem skotin er niður frá því að stríðið hófst í byrjun febrúar. Bandaríkjamenn og Íranir kepptust við að finna flugliðann og Íranir buðu almenningi í landinu upp á fundarlaun sem námu milljónum íslenskra króna og voru áhyggjur uppi meðal bandarískra ráðamanna að Íranir myndu reyna að nýta sér hermanninn sem eins konar skiptimynt ef þeim tækist að hafa hendur í hári hans. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindir frá björgunaraðgerðinni í morgun.AP Íranskir miðlar greindu einnig frá því í nótt að skothríð og sprengingar hefðu heyrst á svæðinu þar sem talið var að orrustuþotan hafi brotlent á föstudag. Ríkistengdi miðillinn Tasmin hafði eftir sveitarstjóra af svæðinu að hið minnsta þrír hefðu fallið í árásunum og kenndi hann Bandaríkjamönnum og Ísrael um. Í gær hótaði Trump því að Íranir hefðu til mánudags, á morgun, til þess að opna Hormússund eða gera friðarsamkomulag við Bandaríkin, annars „færi allt til fjandans“ í Íran og vísaði þar væntanlega til boðaðra árása á orkuinnviði. Trump hefur þegar hótað þessu áður á síðustu mánuðum og framlengt þennan frest tvisvar. Hann framlengdi hann síðast um tíu daga hinn 27. mars með vísan til þess að árangur hefði náðst í viðræðum milli Írana og Bandaríkjamanna. Íranski herin gaf lítið fyrir hótanir Bandaríkjaforseta. Katarski ríkismiðillinn Al Jazeera hafði upp úr yfirlýsingu frá íranska hershöfðingjanum Ali Abdollahi Aliabadi að hótun Trumps bæri merki um „ráðaleysi, taugaveiklun, óstöðugleika og heimsku“.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira