Unnu leik á mánudag sem hafði byrjað sólarhring fyrr Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2026 15:33 Sundsvall-leikmennirnir Marc Manchón, Jonas Olsson, Lucas Forsberg og Jakob Hedenquist fögnuðu sigri í fyrstu umferð en það tók næstum því sólarhring að klára leikinn. @gifsundsvall Leikur Sundsvall og Nordic United í sænsku B-deildinni í fótbolta hófst klukkan þrjú á sunnudag en honum lauk ekki fyrr en tæpum 24 klukkustundum síðar og þá á dramatískan hátt.
Það þurfti að aflýsa leik eftir átta mínútur hér heima á Íslandi um páskana og snjórinn var víða til vandræða. Þá var byrjað á fyrstu mínútu en þetta var aðeins öðruvísi í Svíþjóðþ Fyrsti leikur sænsku B-deildarinnar á NP3 Arena í Sundsvall á sunnudag fauk út í veður og vind vegna mikillar snjókomu. Leikurinn hófst aftur á mánudag klukkan eitt. Þá var Nordic United með 1–0 forystu frá því deginum áður. Það leit líka út fyrir að verða útisigur þegar Niklas Söderberg skoraði og kom gestunum í 2–1 á 86. mínútu. En þá stóð Sundsvall fyrir ótrúlegri endurkomu. Á 95. mínútu jafnaði Hugo Aviander úr vítaspyrnu eftir að brotið var á hinum nítján ára gamla Suwaibou Kebbeh. Þegar boltinn fór inn stóð 94:51 á klukkunni. View this post on Instagram A post shared by GIF Sundsvall (@gifsundsvall) Þegar klukkan stóð í 95:51 kom síðan sigurmark heimaliðsins. Kebbeh kom öllum á óvart þegar hann lét vaða með langskoti sem fór í markið. Leiknum lauk því með 3–2 sigri Sundsvall og mikil fagnaðarlæti brutust út meðal leikmanna Sundsvall eftir lokaflautið. „Ég skil ekki hvað er að gerast. Öll rökfræði hvarf þegar Kebbeh lét þetta skot vaða,“ sagði Yaqub Finey, sem skoraði 1–1 mark Sundsvall, í viðtali við TV4. Elias Andersson hjá Nordic United var orðlaus eftir tapið: „Ég veit ekki hvað ég á að segja,“ sagði Andersson. Hann tjáir sig einnig um þá staðreynd að leikurinn var kláraður daginn eftir. „Þetta er sjúkasti leikur sem ég hef spilað á ferlinum, mikið af hléum. En það er það sama fyrir Sundsvall, svo við eigum í raun ekkert að segja um það,“ sagði Andersson. View this post on Instagram A post shared by GIF Sundsvall (@gifsundsvall)
Sænski boltinn Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Sjá meira