Viðskipti innlent

Far­þegum fjölgaði á milli ára í mars

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Lýður Valberg

Icelandair flutti 342 þúsund farþega í mars 2026, 10 prósentum fleiri en í mars á síðasta ári. Í mánuðinum voru 39 prósent farþega á leið til Íslands, 22 prósent frá Íslandi, 32 prósent voru tengifarþegar og sjö prósent ferðuðust innanlands.

Í tilkynningu frá Icelandair segir að farþegum á leið til Íslands hafi fjölgað um 16 prósent á milli ára og farþegum frá Íslandi um 32 prósent.

Sætanýting var samkvæmt tilkynningu 83,5 prósent og jafnaði met síðasta árs fyrir marsmánuð. Stundvísi var 75,4 prósent en veður hafði umtalsverð áhrif á stundvísi í mánuðinum. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 45 prósent og fraktflutningar, mældir í tonnkílómetrum, jukust um sjö prósent.

„Við sjáum áframhaldandi góðan árangur af áherslum okkar á vöxt yfir vetrartímann og á markaðina til og frá Íslandi. Þessi stefna skilar sér í minni árstíðasveiflu og gerir okkur kleift að beina framboðinu á þá markaði sem skila mestri framlegð hverju sinni. Í mánuðinum var 45% aukning í leiguflugsstarfseminni okkar sem styður einnig við minnkun árstíðasveiflunnar. Í mánuðinum hófum við flug til Faro í suðurhluta Portúgals og hafa viðskiptavinir tekið þessum nýja áfangastað mjög vel,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningunni.

Þar segir hann eldsneytisverð einnig hafa hækkað hratt í mánuðinum vegna átaka í Mið-Austurlöndum.

„Við höfum brugðist við með margvíslegum aðgerðum, meðal annars ráðist í kostnaðaraðhald, endurskoðað fargjöld og aðlagað framboð í öðrum ársfjórðungi. Krefjandi veðurskilyrði á Íslandi höfðu umtalsverð áhrif á flugáætlun okkar í seinni hluta mánaðarins. Ég vil þakka viðskiptavinum okkar fyrir skilninginn og samstarfið í þessum aðstæðum og starfsfólki Icelandair sem lagði sig fram um að lágmarka áhrifin og koma farþegum á öruggan hátt á áfangastað,“ segir Bogi að lokum.


Tengdar fréttir

Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair

Óveðrið sem gengur brátt yfir landið er farið að hafa áhrif á flugferðir Icelandair og hafa nokkrar utanlandsferðir verið felldar niður í fyrramálið. „Það er náttúrulega spáð mjög slæmu veðri um allt land á morgun og við gerum alveg ráð fyrir að það muni valda einhverjum röskunum á flugi.“ 

Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs

Flugferðum Icelandair til Akureyrar, Egilsstaða og Ísafjarðar í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Unnið er að endurskipulagningu flugferða til að ferðalangar komist á áfangastað í síðasta lagi á morgun. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×