„Á meðan það er tími á klukkunni þá er alltaf möguleiki til að vinna“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 8. apríl 2026 21:28 Brittany Dinkins var frábær í liði Njarðvíkur Hulda/Vísir Njarðvík gerði sér lítið fyrir og sópaði Tindastól í 8-liða úrslitum Bónus deild kvenna þegar þær unnu leik þrjú á eins dramatískan hátt og hugsast getur. Brittany Dinkins setti þrist þegar tíminn rann út og Njarðvík sigraði 88-87 og hún ræddi við okkur eftir leik. „
Ef ég á að vera hreinskilin þá er þetta skemmtilegi hlutinn“ sagði Brittany Dinkins hetja Njarðvíkur eftir sigurinn í kvöld. „Það er ekkert gefið þú verður að hafa fyrir öllu. Hvaða ferðalag er skemmtilegt ef það er auðvelt? Ég sagði í leikhléinu að þetta væri skemmtilegi hlutinn og við erum með bakið upp við vegg“ „Eins og þjálfarinn minn í háskóla sagði alltaf, frábærir leikmenn skapa frábær augnablik “ Frábær sigur hjá Njarðvík sem þurfti svo sannarlega að hafa fyrir þessum sigri. „Við vissum að þær myndu mæta af krafti. Við vissum að þetta yrði ekki auðvelt og þær eru að berjast fyrir lífi sínu og eru hættulegar. Við vissum að við þyrftum að mæta tilbúnar og því miður þá náðum við ekki að vera eins beittar og í síðasta leik en við fundum út úr þessu og það er það sem skiptir mestu máli“ Njarðvík átti mjög erfiðan þriðja leikhluta þar sem þær misstu leikinn svolítið frá sér en þær skoruðu bara tólf stig í leikhlutanum og því mikilvægt að missa ekki haus. „Já klárlega, því líkamstjáningin verður að trúa því ef við trúum þá skiptir það ekki máli svo lengi sem það er tími á klukkunni“ „Á meðan það er tími á klukkunni þá er alltaf möguleiki til að vinna“ Það var rétt rúm sekúnda eftir á klukkunni þegar Brittany Dinkins fékk boltann í hendurnar og kláraði leikinn með frábærum þrist. Það var aldrei neinn vafi í hennar huga að hún myndi negla þetta skot. „Nei, þetta var skemmtilegi hlutinn. Frábærir leikmenn skapa frábær móment og þjálfarinn treysti mér fyrir þessu og liðsfélagarnir trúðu á mig og þá vinnu sem ég legg inn og ég er bara ánægð að í kvöld stóðum við uppi sem sigurvegarar“ Njarðvík eru búnar að slá út Tindastól og þær eru bjartsýnar með framhaldið. „Við verðum að halda fókus og vera rólegar. Við megum ekki missa matarlystina“ sagði Brittany Dinkins.
UMF Njarðvík Körfubolti Bónus-deild kvenna Mest lesið Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti Fleiri fréttir Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Sjá meira