Fótbolti

UEFA gefur Infantino loka­frest til að af­henta lykilskjöl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gianni Infantino ætlar sér að halda áfram sem forseti FIFA og þykir enn líklegur til að ná endurkjöri á næsta ári.
Gianni Infantino ætlar sér að halda áfram sem forseti FIFA og þykir enn líklegur til að ná endurkjöri á næsta ári. Getty/Yu Chun Christopher Wong

Knattspyrnusamband Evrópu herðir tökin gagnvart Gianni Infantino, forseta FIFA, og krefst þess að lykilskjöl tengd hinum misheppnuðu og harðlega gagnrýndu fjárfestaáætlunum verði gerð opinber fyrir 2. nóvember.

Þetta kemur fram í bréfi frá Theodore Theodoridis, framkvæmdastjóra UEFA, sem breska ríkisútvarpið hefur fengið aðgang að.

Í bréfinu skrifar Theodoridis að forysta FIFA hafi enn ekki svarað nokkrum grundvallarspurningum varðandi verkefnið sem var slegið af, en því var ætlað að veita einkafjárfestum viðskiptalegt hlutverk, meðal annars á komandi heimsmeistaramótum í knattspyrnu.

Nú fer UEFA fram á að verkinu verði hraðað og einfaldri synjun um að birta umrædd gögn verður ekki tekið umyrðalaust.

„Sérhverja synjun um að afhenda upplýsingar eða skjöl ber að rökstyðja sérstaklega með skýrri útlistun á þeim tiltekna grundvelli sem byggt er á,“ segir enn fremur í bréfinu samkvæmt BBC.

UEFA á einnig að hafa sent átta blaðsíðna skjal til æðstu stjórnenda FIFA. Þar er bent á fjölda áhyggjuefna, meðal annars varðandi fjárfestaáætlanirnar, hina umdeildu veitingu friðarverðlauna Donalds Trump Bandaríkjaforseta í desember í fyrra og Balogun-málið í úrslitakeppni HM í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×