Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Kjartan Kjartansson skrifar 10. apríl 2026 13:08 Viktor Orbán (t.v.) reynir nú að standast áhlaup Péters Magyar (t.h.) og framlengja stjórnarsetu sína sem hefur þegar spannað sextán ár. Vísir/EPA Kálið er ekki endilega sopið þótt í ausuna sé komið hjá ungversku stjórnarandstöðunni þrátt fyrir að hún mælist með töluvert forskot á flokk Viktors Orbán forsætisráðherra fyrir kosningar sem fara fram á sunnudag. Stórveldi fylgjast grannt með úrslitunum en Orbán er helsti bandamaður bæði Rússa og Bandaríkjamanna í Evrópu.
Mikið hefur verið gert úr möguleikanum á að Orbán verði loks velt úr sessi eftir sextán ár á forsætisráðherrastóli. Miðhægriflokkurinn Tisza undir forystu Péters Magyar mælist með tíu prósenta forskot á Fidesz-flokk Orbán samkvæmt meðaltali kannana hjá evrópska dagblaðinu Politico. Ungverska stjórnarandstaðan er þó brennd af fyrri falsvonum. Hún virtist eygja möguleika á sigri fyrir síðustu kosningar árið 2022 þegar kannanir bentu til þess að mjótt yrði á munum. Niðurstaðan var hins vegar aukinn meirihluti Fidesz á þingi. Ástæðan er ekki síst flókið kosningakerfi í Ungverjalandi og hvernig Orbán hefur hagrætt kjördæmaskipan í eigin þágu í valdatíð sinni. Þannig fékk flokkurinn tæp 68 prósent þingsæta út á 54 prósent atkvæða á landsvísu fyrir fjórum árum. Hatrömm barátta Kosningabaráttan hefur verið hatrömm til þessa. Magyar sakaði stjórn Orbán um að njósna um sig til þess afla upplýsinga um hann sem geti komið honum illa. Orbán hefur beint spjótum sínum að miklu leyti að Úkraínu og Evrópusambandinu og meintri þjónkun stjórnarandstöðunnar við það. Hann hefur verið lykilbandamaður Vladímírs Pútín Rússlandsforseta í Evrópu og tafið og komið í veg fyrir að Evrópusambandið aðstoði Úkraínumenn. Nýlega var greint frá því að Orbán hefði boðið Pútín aðstoð sína í símtali í haust og að utanríkisráðherra Ungverjalands hefði hlaupið með upplýsingar af leiðtogafundum ESB beint í rússneskan starfsbróður hans. Orbán hefur forherst í andstöðunni við Úkraínu á undanförnum vikum. Hann lýsti Úkraínu óvin Ungverjalands í kosningabaráttunni og skrúfaði fyrir mikilvæga gasleiðslu þangað. Orbán tók á móti J.D. Vance (t.h.), varaforseta Bandaríkjanna, í Búdapest í vikunni í lítt dulinni tilraun Bandaríkjastjórnar til þess að fleyta ungverskum bandamanni Bandaríkjastjórnar til sigurs á sunnudaginn.Vísir/EPA Forsætisráðherrann nýtur stuðnings Bandaríkjastjórn sem sendi J.D. Vance, varaforseta, til Búdapest í vikunni til þess að hjálpa bandamanni hennar í kosningunum. Margir bandarískir repúblikanar líta á valdboðsdrifna kristna þjóðernishyggju Orbán sem fyrirmynd. Rússar hafa einnig brotið heilann um hvernig þeir gætu komið Orbán til bjargar. Bandaríska blaðið Washington Post sagði í síðasta mánuði að rússneska leyniþjónustan hefði skoðað að sviðsetja banatilræði gegn Orbán til þess að afla honum samúðarfylgis. Margslungið kosningakerfi Búist er við fyrstu tölum strax á sunnudagskvöld og fyrstu spám um dreifingu þingsæta upp úr miðnætti að staðartíma. Utankjörfundaratkvæði Ungverja sem eru búsettir erlendis eru sögð líkleg til þess að geta haft mikil áhrif á úrslitin á landsvísu. Aldrei áður hafa eins margir verið á kjörskrá erlendis, tæplega hálf milljón manna.Afgerandi meirihluti Ungverja erlendis greiddi Fidesz atkvæði síðast, rúm níutíu prósent. Kosningakerfið í Ungverjalandi er tvískipt og allflókið í framkvæmd. Meirihluti þingmanna á ungverska þinginu er kosinn í einmenningskjördæmum en tæpur helmingur í gegnum landslista. Atkvæði sem eru greidd í einmenningskjördæmunum eru að hluta til einnig talin í kosningu landslistanna, þar á meðal atkvæði sem þingmenn sem sigruðu í sínum kjördæmum hlutu umfram þau sem þeir þurftu til sigurs. Gagnrýnt hefur verið að með þessum hætti hafi í raun verið innleitt kosningakerfi þar sem sá flokkur sem fær flest atkvæði fær alla þingmennina líkt og tíðkast til dæmis í Bretland og Bandaríkjunum.
Ungverjaland Evrópusambandið Bandaríkin Donald Trump Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Úkraína Kosningar í Ungverjalandi Tengdar fréttir Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar. 8. apríl 2026 15:37 Bauð Pútín að vera „músin“ hans Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, bauð Vladímír Pútín Rússlandsforseta alla þá aðstoð sem hann gæti veitt honum í haust. Ungverski leiðtoginn, sem hefur komið í veg fyrir lánveitingar ESB til Úkraínu, sagðist geta verið músin sem hjálpaði ljóninu Pútín. 8. apríl 2026 10:10 Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Ríkisstjórn Viktors Orbán í Ungverjalandi hefur ákveðið að skrúfa fyrir gasleiðslur til Úkraínu til þess að knýja á um að olíuleiðsla frá Rússlandi verði opnuð aftur. Orbán hefur tekið upp enn harðari stefnu gegn Úkraínu en áður í harðri kosningabaráttu sem hann háir heima fyrir. 25. mars 2026 11:44 Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur vakið mikla reiði meðal Evrópuleiðtoga eftir að hann gekk á bak orða sinna. Orbán hafði í desember sagst myndu samþykkja 90 milljarða evra lán til Úkraínu svo lengi sem Ungverjar yrðu ekki meðal lánveitenda en hefur nú dregið það til baka. 20. mars 2026 06:33 Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Innlent Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Innlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Lést í stormi í Færeyjum Erlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Fleiri fréttir Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Sjá meira
Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar. 8. apríl 2026 15:37
Bauð Pútín að vera „músin“ hans Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, bauð Vladímír Pútín Rússlandsforseta alla þá aðstoð sem hann gæti veitt honum í haust. Ungverski leiðtoginn, sem hefur komið í veg fyrir lánveitingar ESB til Úkraínu, sagðist geta verið músin sem hjálpaði ljóninu Pútín. 8. apríl 2026 10:10
Skrúfa fyrir eina helstu leiðina fyrir gas til Úkraínu Ríkisstjórn Viktors Orbán í Ungverjalandi hefur ákveðið að skrúfa fyrir gasleiðslur til Úkraínu til þess að knýja á um að olíuleiðsla frá Rússlandi verði opnuð aftur. Orbán hefur tekið upp enn harðari stefnu gegn Úkraínu en áður í harðri kosningabaráttu sem hann háir heima fyrir. 25. mars 2026 11:44
Orbán stendur í vegi fyrir lánveitingunni til Úkraínu Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur vakið mikla reiði meðal Evrópuleiðtoga eftir að hann gekk á bak orða sinna. Orbán hafði í desember sagst myndu samþykkja 90 milljarða evra lán til Úkraínu svo lengi sem Ungverjar yrðu ekki meðal lánveitenda en hefur nú dregið það til baka. 20. mars 2026 06:33